HYROX mótaröðin
HYROX mótaröðin er haldin í Crossfit Reykjavík, Faxafeni 12.
Mótaröðin 2026 samanstendur af þremur mótum og mun skor úr 2 BESTU mótunum gefa stig til keppni um Hyrox Meistara Íslands 2026.
Þátttakendur hlaupa 1 km, klára svo eina stöð og endurtaka leikinn átta sinnum.
Í paraflokki hlaupa báðir keppendur öll átta hlaupin en skipta hinum æfingunum á milli sín að vild.
Við hvetjum vini og fjölskyldur til þess að mæta og hvetja sína keppendur áfram frá upphafi til enda þar sem það skapar mikla stemmningu.
HYROX er fyrir fólk á öllum getu stigum. HYROX ER FYRIR ALLA
