Almenningsíþróttadeild Víkings
Kt. 481210-0620
Jóhann Guðjónsson
Símanr.: 617 4804
almennings@vikingur.is
Hleðsluhlaupið verður haldið fimmtudaginn 27. ágúst við Víkina í Fossvogi. Boðið er upp á tvær vegalengdir, 5 km og 10 km og hefst hlaupið kl 19:00.
Hlaupaleiðin er hringur í Fossvogsdalnum þar sem einn hringur er 5 km og tveir hringir eru 10 km. Kort af hlaupaleið á þessum hlekk: Skoða hlaupaleið á stærra korti
Vegalengdir eru löglega mældar og viðurkenndar af Frjálsíþróttasambandi Íslands (FRI). Drykkjarstöð er á miðri leið fyrir 10 km hlaupara og eftir hlaup fyrir alla þátttakendur. Aldurstakmark er 12 ára, allir hlauparar sem náð hafa þeim aldri eru velkomnir, jafnt byrjendur sem lengra komnir.
Í lok hlaups er boðið upp á veglegt kökuhlaðborð í Víkinni ásamt útdráttar verðlaunum fyrir þátttakendur sem skrá sig fyrir miðnætti 26. ágúst.
Hleðsluhlaupið hefur verið mjög vinsælt undanfarin ár en fjöldatakmörk þátttakanda eru 650 hlauparar. Hlaupið var valið götuhlaup ársins í einkunnagjöf hlaupara árið 2025, 2024 og 2022 og í öðru sæti árið 2023.
Tími og staðsetning
Hlaupið fer fram í Fossvogi fimmtudaginn 27. ágúst kl. 19:00. Hlaupið er frá Víkinni, félagsheimili Víkings, Traðarlandi 1. Vinsamlegast mætið tímanlega.
Þátttökugjald og skráning
Forskráning fer fram á netskraning.is.
Verð í forskráningu fyrir miðnætti til 30. júní 2024:
2.500 kr,- fyrir 19 ára og eldri (f. 2007 og fyrr).
1.000 kr,- fyrir 12-18 ára (f.2008 - 2014).
Verð frá 1. júlí til miðnættis 26. ágúst:
3.000 kr,- fyrir 19 ára og eldri (f. 2007 og fyrr).
1.500 kr,- fyrir 12-18 ára (f.2008 - 2014).
Skráning á hlaupadegi
4.000 kr,- fyrir 19 ára og eldri (f. 2007 og fyrr)
2.000 kr,- fyrir 12-18 ára (f.2008 - 2014).
Listi yfir skráða þátttakendur er á netskraning.is.
Afhending hlaupagagna
Hlaupagögn verða afhent í íþróttasalnum í Víkinni á hlaupadegi, fimmtudaginn 27. ágúst frá kl. 16.00 - 18.30.
Athugið að ekki er hægt að skrá sig á staðnum nema á eigin vegum á netskraning.is og að því loknu sótt hlaupagögnin.
Verðlaun
Vegleg peningaverðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sætin í karla - og kvennaflokki í báðum vegalengdum þar sem 1. sæti hlýtur 50.000 kr, 2. sæti 40.000 kr og 3. sæti 30.000 kr, heildar verðlaunafé er því 480.000 kr.
Einnig verða veitt verðlaun fyrir fyrsta sæti í hverjum aldursflokki í báðum vegalengdum.
Verðlaunaafhending hefst kl 19:30 í íþróttasalnum í Víkinni. Þátttakendur sem skrá sig fyrir miðnætti þann 26. ágúst eiga möguleika vera dregin út og fá einhvern af þeim fjölda glæsilegra útdráttarverðlauna. Hlaupanúmer þeirra sem vinna til útdráttarverðlauna verða birt í íþróttasalnum í Víkinni.
Aldursflokkar
Úrslit verða birt sem heildarúrslit og eftir aldursflokkum karla og kvenna:
12-18 ára
19-29 ára
30-39 ára
40-49 ára
50-59 ára
60-69 ára
70 ára og eldri
Salerni og fatageymsla
Salerni og fatageymsla (vaktað) er í tengibyggingu við íþróttasalinn. Engin ábyrgð er tekin á fatnaði eða öðrum munum og ekki heldur á hlaupaleiðinni.
Almennar upplýsingar
Að hlaupi loknu er þátttakendum boðið upp á hressingu og veitingar í íþróttasalnum í Víkinni. Þátttakendur eru hvattir til að sameinast í bíla og nota almenningssamgöngur. Þeir sem búa næst svæðinu eru beðnir um að skilja bílinn eftir heima. Bílastæði eru í Stjörnugróf, stæði austan við Víkina og við Fossvogsskóla. Athugið að bílastæði vestan við Víkina verða lokuð vegna hlaupsins frá kl. 16:00. Traðarlandi verður lokað fyrir umferð frá kl. 18.45 og þar til síðasti hlaupari er komin í mark (um kl. 20.30)
Úrslit verða birt á timataka.net
Myndir frá hlaupinu verða birtar á Facebook síðu hlaupsins: Facebook
Skipuleggjendur
Almenningsíþróttadeild Víkings, netfang: almennings@vikingur.is.
Hlaupastjóri: Jóhann Guðjónsson, sími 617-4804
Við erum á Facebook: Facebook - Endilega deilið, fylgist með og „lækið".