Hlaupasería Hlaupahóps FH og Hlaupárs 2026


Keppnishaldari

Hlaupahópur FH
Kt. 681189-1229
Kaplakrika
220 Hafnarfirði

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Hlaupasería FH og Hlaupárs 2026 verður haldin í janúar, febrúar og mars. Hlaupin verða vottuð af FRÍ og eru jafnframt stigakeppni einstaklinga.


Staðsetning og tími

Hlaupin hefjast kl.19:00 frá göngustígnum gegnt íþróttahúsinu á Strandgötu í Hafnarfirði

  • Fimmtudagur 29. janúar.
  • Fimmtudagur 26. febrúar.
  • Fimmtudagur 26. mars.

Skráning og þátttökugjald

Skráning og greiðsla fer fram á netskraning.is. Einnig verður hægt að skrá sig á staðnum en mælum við með því að keppendur skrái sig hér á vefnum til að flýta fyrir afhendingu keppnisgagna.

  • Fullorðnir (15 ára og eldri) greiða 1.900 kr (4.400 kr ef greitt er fyrir öll þrjú hlaupin í einu)
  • Börn (0-14 ára) greiða 1.000 kr (2.000 kr ef greitt er fyrir öll þrjú hlaupin í einu)

Tímataka

Allir þátttakendur þurfa að vera með rásnúmer. Rásnúmerið er með áfastri tímatökuflögu. Númerin verða afhent í Hlaupár fyrir hlaup íþróttahúsinu á Strandgötu á hlaupadegi milli kl.17:30 - 18:45.
Rásnúmerið er margnota og hægt að nota í öllum þremur hlaupunum, gætið þess að beygla ekki eða beygja flöguna.

Hraðastjórar munu hlaupa á 20 mín, 25 mín og 30 mín.

Hlaupaleiðin

Hlaupið er frá upphafspunkti (stígur gegnt íþróttahúsinu á Strandgötu), eftir göngustígnum meðfram strandlengju Hafnarfjarðar til norðurs áfram Herjólfsbraut, beygt til vinstri inn Naustahlein og þaðan aftur inn á Herjólfsbraut og til baka sömu leið.

  • Partur af hlaupaleiðinni er á götu og eru þátttakendur beðnir um að taka tillit til þess og sýna varúð. Brautargæsla verður á hlaupaleiðinni og við gatnamót þar sem að lokað verður fyrir umferð.
  • 1 km, 2 km, 3 km og 4 km keilur verða staðsettar á hlaupaleið.
  • Þátttakendur eru hvattir til að kynna sér hlaupaleiðina vel.

Salerni og fatageymsla

Salernisaðstaða er í íþróttahúsinu á Strandgötu og þar er einnig hægt að geyma fatnað. Athugið að engin ábyrgð er tekin á fatnaði eða öðru sem skilið er eftir í íþróttahúsinu né á hlaupleiðinni.

Stigakeppni

  • 1.sæti gefur 15 stig
  • 2.sæti gefur 14 stig
  • 3.sæti gefur 13 stig
  • .......
  • 13.sæti gefur 3 stig
  • 14.sæti gefur 2 stig
  • 15.sæti gefur 1 stig

Samanlagður stigafjöldi í heildarúrslitum og aldursflokkum í öllum hlaupunum þremur gildir.

Séu þátttakendur jafnir að stigum eftir þrjú hlaup eru það úrslit í síðasta hlaupi (mars-hlaupi) sem skera úr um sætaröðun í stigakeppninni.

Í stigakeppninni gildir eftirfarandi aldursflokkar fyrir karla og kvennaflokk;

  • 14 ára og yngri
  • 15-29 ára
  • 30-39 ára
  • 40-49 ára
  • 50-59 ára
  • 60 ára og eldri

Verðlaun og lokahóf

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í karla og kvennaflokki óháð aldursflokki eftir hvert hlaup og fer verðlaunaafhending fram í íþróttahúsinu á Strandgötu strax að loknu hlaupi.

Verðlaunaafhending fyrir hlaupaseríuna fer svo fram á lokahófi sem haldið verður í Sjónarhól Kaplakrika (dags. auglýst síðar).

Þar verða heildarsigurvegarar fyrir hlauparöðina í karla- og kvennaflokki verðlaunaðir fyrir samanlagðan árangur í öllum þremur hlaupunum auk þess að verðlaunað verður fyrir fyrstu þrjú sætin í hverjum aldursflokki karla og kvenna.

Einnig verða dregin út glæsileg útdráttarverðlaun þar sem möguleikarnir fara eftir fjölda hlaupa þátttakanda

Frekari upplýsingar

Hægt er að fylgjast með hlaupinu á Facebook síðu hlaupsins.

Þátttakendur fá frítt í sund að hlaupi loknu í Suðurbæjarlaug (Hringbraut 77)

Upplýsingar um keppanda


Keppnisgreinar

29.01.2026

26.02.2026

26.03.2026