Hlaupin hefjast kl.19:00 frá göngustígnum gegnt íþróttahúsinu á Strandgötu í Hafnarfirði
Skráning og greiðsla fer fram á www.netskraning.is. Einnig verður hægt að skrá sig á staðnum en mælum við með því að keppendur skrái sig hér á vefnum til að flýta fyrir afhendingu keppnisgagna.
Allir þátttakendur þurfa að vera með rásnúmer. Rásnúmerið er með áfastri tímatökuflögu. Númerin verða afhent í íþróttahúsinu á Strandgötu á hlaupadegi milli kl.17:30 - 18:45. Þátttakendur er vinsamlegast beðnir um að virða þau tímamörk. Rásnúmerið er margnota og hægt að nota í öllum þremur hlaupunum, gætið þess að beygla ekki eða beygja flöguna.
Hraðastjórar verða í boði en þeir munu hlaupa á 20 mín, 25 mín og 30 mín.
Öll úrslit ásamt stöðu í stigakeppninni verða birt á timataka.is, hlaup.is og á Facebooksíðu Hlaupaseríunnar eins fljótt og kostur er.
Salernisaðstaða er í íþróttahúsinu á Strandgötu og þar er einnig hægt að geyma fatnað. Athugið að engin ábyrgð er tekin á fatnaði eða öðru sem skilið er eftir í íþróttahúsinu né á hlaupleiðinni.
Samanlagður stigafjöldi í heildarúrslitum og aldursflokkum í öllum hlaupunum þremur gildir.
Séu þátttakendur jafnir að stigum eftir þrjú hlaup eru það úrslit í síðasta hlaupi (mars-hlaupi) sem skera úr um sætaröðun í stigakeppninni.
Í stigakeppninni gildir eftirfarandi aldursflokkar fyrir karla og kvennaflokk;
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í karla og kvennaflokki óháð aldursflokki eftir hvert hlaup og fer verðlaunaafhending fram í íþróttahúsinu á Strandgötu strax að loknu hlaupi.
Verðlaunaafhending fyrir hlaupaseríuna fer svo fram á lokahófi sem haldið verður í Sjónarhól Kaplakrika (dags. auglýst síðar).
Þar verða heildarsigurvegarar fyrir hlauparöðina í karla- og kvennaflokki verðlaunaðir fyrir samanlagðan árangur í öllum þremur hlaupunum auk þess að verðlaunað verður fyrir fyrstu þrjú sætin í hverjum aldursflokki karla og kvenna.
Einnig verða dregin út glæsileg útdráttarverðlaun þar sem möguleikarnir fara eftir fjölda hlaupa þátttakanda;
Hægt er að fylgjast með hlaupinu á Facebook síðu hlaupsins.
Þátttakendur fá frítt í sund að hlaupi loknu í Suðurbæjarlaug (Hringbraut 77)