HFR - Elja Challenge
Hjólreiðafélag Reykjavíkur í samstarfi við Lauf Cycles halda fjallahjólakeppnina HFR-Elja Challenge laugardaginn 30. maí, 2026. Mótið er tvímeningskeppni þar sem karla-, kvenna, og blönduð lið eru í boði. Aldursflokkar eru fjórir þar sem samanlagður aldur keppenda hvers liðs á árinu er notaður.
Brautin er um 50 km í fjölbreyttu landslagi, en þó með minna hrauni en árið 2025. Lauf gefur vegleg útdráttarverðlaun sem og afslátt í Lauf Rift keppnina í júlí, til allra liða í 50 km brautinni.
- Eitt lið í 50 km keppninni verður dregið út og fær frítt í Rift keppnina 2026, eða 2027 (ef fólk er nú þegar búið að skrá sig í ár!)
- Allir þátttakendur í 50 km keppninni fá 25% afslátt í Rift 2026.
Einnig verður í boði styttri vegalengd þar sem einstaklingar geta keppt án liðs. Í þessari vegalengd eru rafmagnshjól velkomin.