Hengill Ultra Trail 2025

Íslenska English

Keppnishaldari

Tailwind ehf
Kt. 540122-0590
info@vikingamot.is

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning
Hengill Ultra 2025

Hengill Ultra Trail utanvegahlaup verður nú haldið í fjórtánda sinn dagana 6. og 7. júní 2025.

Boðið verður uppá fjölbreyttar hlaupaleiðir; 5K, 10K, 26K, 53K og 106K.

Byrjunarreitur allra vegalengda og mótsstjórn verður í miðbæ Hveragerðis. Styttri vegalengdirnar eru í kringum Hveragerði og upp að Hamrinum sem er gríðarlega fallegur hraunhamar yfir bænum. 26km vegalengdin er upp Reykjadalinn upp að Ölkelduhnjúk og í kringum hann.  53km hlauparar hlaupa hinsvegar áfram inn að Hengli, yfir fjallgarðinn, niður Sleggjubeinsskarð og þaðan til baka. Þau sem hlaupa 106km fara þá leið tvisvar. Útsýnið er algjörlega einstakt og er þessi hlaupaleið ein sú fallegasta sem hægt er að finna á Íslandi.

Á meðan Hengill Ultra er í gangi þá breytist Hveragerði í hlaupa karnival með sölusýningu í íþróttahúsinu. Þar verða einnig allir brautarfundir fyrir hverja vegalengd fyrir sig ásamt verðlaunaafhendingu. Hveragerði ljómar öll og hefur nóg upp á að bjóða fyrir gesti.


Nánari upplýsingar um flokkana: 
106K HENGILL ULTRA 
  • Dagsetning: 6. júní 2025.
  • Ræsing klukkan 18:00.
  • Skráningargjald: 46.900 kr.
  • Skráningargjald til miðnættis 2. febrúar: 36.900 kr.
  • Skráningargjald til miðnættis 10. desember 2024: 29.900 kr.
  • Skráningu lýkur kl. 23:59 þann 1. júní 2025.

Innifalið í mótsgjaldi: 
  • Brautar- og öryggisgæsla.
  • Trackerar sem sýna hlaupara í rauntíma.     
  • Drykkir og matur á drykkjarstöðvum á Ölkelduhálsi og í Sleggjubeinsskarði.
  • Salernisaðstaða á Ölkelduhálsi og í Sleggjubeinsskarði. 
  • Þátttökuverðlaun og sigurverðlaun. 
  • Grillaður hamborgari og drykkur í markinu. 
  • Sturtuaðstaða og frítt í sund í sundlauginni Laugarskarði.
  • Aðgangur að lækni og hjúkrunarfólki í Hveragerði.
  • Tímataka og númer.
  • Flutningur til byggða fyrir þau sem ekki ná tímamörkum.
* Tímamörk: 1. hringur: 10 tímar, 2. hringur: 12 tímar, endamark: 22 tímar.
Skyldubúnaður samkvæmt mótaskrá.

53K HENGILL ULTRA 
      • Dagsetning: 7. júní 2025.
      • Ræsing klukkan 08:00.
      • Skráningargjald: 34.900 kr.
      • Skráningargjald til miðnættis 2. febrúar: 29.900 kr.
      • Skráningargjald til miðnættis 10. desember 2024: 24.900 kr.
      • Skráningu lýkur kl. 23:59 þann 1. júní 2025

Innifalið í mótsgjaldi: 
  • Brautar- og öryggisgæsla.
  • Drykkir og matur á drykkjarstöðvum á Ölkelduhálsi og í Sleggjubeinsskarði.
  • Salernisaðstaða á Ölkelduhálsi og í Sleggjubeinsskarði. 
  • Þátttökuverðlaun og sigurverðlaun. 
  • Grillaður hamborgari og drykkur í markinu. 
  • Sturtuaðstaða og frítt í sund í sundlauginni Laugarskarði.
  • Aðgangur að lækni og hjúkrunarfólki í Hveragerði.
  • Tímataka og númer.
  • Flutningur til byggða fyrir þau sem ekki ná tímamörkum.
* Skyldubúnaður samkvæmt mótaskrá.
**Tímamörk 12 tímar.

26K HENGILL ULTRA 
  • Dagsetning: 7. júní 2025.
  • Ræsing klukkan 13:00.
  • Skráningargjald: 17.900 kr.
  • Skráningargjald til miðnættis 2. febrúar: 15.900 kr.
  • Skráningargjald til miðnættis 10. desember 2024: 12.900 kr.
  • Skráningu lýkur kl 23:59 þann 1. júní 2025.

Innifalið í mótsgjaldi: 
  • Brautar- og öryggisgæsla.
  • Drykkir og matur á drykkjarstöðinni í Sleggjubeinsskarði.
  • Salernisaðstaða í Sleggjubeinsskarði. 
  • Þátttökuverðlaun og sigurverðlaun. 
  • Grillaður hamborgari og drykkur í markinu. 
  • Sturtuaðstaða og frítt í sund í sundlauginni Laugarskarði.
  • Aðgangur að lækni og hjúkrunarfólki í Hveragerði.
  • Tímataka og númer.
  • Flutningur til byggða fyrir þau sem ekki ná tímamörkum.

10K HENGILL ULTRA 
      • Dagsetning: 7. júní 2025.
      • Ræsing klukkan 10:00.
      • Skráningargjald: 9.900 kr.
      • Skráningargjald til miðnættis 2. febrúar: 7.900 kr.
      • Skráningargjald til miðnættis 10. desember 2024: 6.900 kr.
      • Skráningu lýkur kl. 13:00 þann 8. júní 2025 eða þegar vegalengd er uppseld (500).

Innifalið í mótsgjaldi: 
  • Brautar- og öryggisgæsla.
  • Drykkir á drykkjarstöð við Reykjadalskaffi. 
  • Þátttökuverðlaun og sigurverðlaun. 
  • Grillaður hamborgari og drykkur í markinu.
  • Sturtuaðstaða og frítt í sund í sundlauginni Laugarskarði.
  • Aðgangur að lækni og hjúkrunarfólki í Hveragerði.
  • Tímataka og númer.

HENGILL ULTRA 5 KM  5.0 km.
  • Dagsetning: 7. júní 2025.
  • Ræsing klukkan 14:00.
  • Skráningargjald: 6.900 kr.
  • Skráningargjald til miðnættis 2. febrúar: 5.500 kr.
  • Skráningargjald til miðnættis 10. desember 2024: 3.900 kr.

Innifalið er í mótsgjaldi: 
  • Brautar- og öryggisgæsla.
  • Þátttökuverðlaun og sigurverðlaun. 
  • Grillaður hamborgari og drykkur í markinu. 
  • Sturtuaðstaða og frítt í sund í sundlauginni Laugarskarði.
  • Aðgangur að lækni og hjúkrunarfólki í Hveragerði.
  • Tímataka og númer.




Upplýsingar um keppanda


Aukaupplýsingar í neyðartilfelli
Nauðsynlegar upplýsingar fyrir mótshaldara í neyðartilfelli.

Keppnisgreinar

06.06.2025

07.06.2025