Haustmaraþon Félags Maraþonhlaupara 2026

Íslenska English

Keppnishaldari

Félag Maraþonhlaupara
Kt. 450511-0130
felagmarathonhlaupara@gmail.com

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Vormaraþon Félags maraþonhlaupara

Haustmaraþon Félags maraþonhlaupara fer fram laugardaginn 10. október 2026

Maraþonið verður Meistaramót Íslands í maraþoni 2026 (FRÍ)

Félag maraþonhlaupara hefur í yfir 20 ár haldið vor- og haustmaraþon og hafa þessi hlaup fyrir löngu skipað sér fastan sess og njóta sívaxandi vinsælda. Reynt hefur verið að skapa hlýja og afslappaða stemningu í kringum hlaupin. Leiðin liggur í fallegu umhverfi eftir helstu stígum borgarinnar eins fjarri allri bílaumferð og frekast er unnt. Boðið er upp á tvær vegalengdir heilt og hálft maraþon. (Sjá kort af hlaupaleið).
Hlaupagögn eru afhent í verslun Sport24 í Miðhrauni 2 Í Garðabæ vikuna fyrir hlaup. Hlaupagögn verða einnig afhent við rásmarkið. Það geta myndast langar biðraðir við afhentingu númera á hlaupadegi og hvetjum við því alla til að sækja númerin í Sport24 fyrir hlaup.

Maraþonið hefst kl. 9:00.
Hálfmaraþonið hefst kl. kl. 11:00

Sjá nánari upplýsingar um hlaupið á vefnum marathonhlaup.is.

Hlaupaleiðin er löglega mæld og viðurkennd af AIMS alþjóðasamtökum maraþonhlaupa og er vottað af Frjálsíþróttasambandi Íslands.

Upplýsingar um keppanda


Keppnisgreinar

10.10.2026