Hafnarfjall Ultra

Íslenska English

Keppnishaldari

Hlaupahópurinn Flandri
Kt. 530224-1200
Stefán Gíslason
Símanr.: 8620538
stefan@environice.is

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Hafnarfjall Ultra er utanvegahlaup sem ræst verður í annað sinn í Borgarnesi laugardaginn 27. júní 2026. Hlaupahópurinn Flandri í Borgarnesi stendur að hlaupinu, en hópurinn hefur um árabil staðið fyrir Flandrasprettum, sem eru 5 km götuhlauparöð sem haldin er mánaðarlega yfir vetrarmánuðina.
Þátttakendur í Hafnarfjall Ultra geta valið milli fjögurra vegalengda:

  1. Hafnarfjall Tindur 15,08 km, 844 m hækkun
  2. Hafnarfjall 7 tindar 23,87 km, 1.218 m hækkun
  3. Hafnarfjall 7 tindar og dalir 36,20 km, 2.316 m hækkun
  4. Hafnarfjall fjölskylduhlaup 2,39 km, 155 m hækkun

Þrjú lengri hlaupin eru ræst við Menntaskóla Borgarfjarðar, við hliðina á Nettóversluninni í Borgarnesi – og enda á sama stað. Fjölskylduhlaupið er hins vegar ræst á malarvegi við rætur Hafnarfjalls. Rúta flytur keppendur þangað frá menntaskólanum og aftur til baka að hlaupi loknu.
 

Dagskrá hlaupadags

  • Kl. 09:00 Start: Öll lengri hlaupin við Menntaskóla Borgarfjarðar (MB)
  • Kl. 10:30 Von á fyrstu keppendum í „Hafnarfjall Tindur“ í mark við MB
  • Kl. 11:00 Brottför rútu sem flytur þátttakendur í fjölskylduhlaupi frá MB að rásmarki
  • Kl. 11:30 Start: Fjölskylduhlaup við drykkjarstöð neðan við Hafnarfjall
  • Kl. 11:30 Von á fyrstu keppendum í „Hafnarfjall 7 tindar“ í mark við MB 
  • Kl. 11:45 Von á fyrstu keppendum í fjölskylduhlaupinu í mark við drykkjarstöðina
  • Kl. 13:00 Von á fyrstu keppendum í „Hafnarfjall 7 tindar og dalir“ í mark við MB 
  • Kl. 17:00 Marki lokað

Þátttökugjald

 

Til 31. maí 2026

Frá 1. júní 2026

Hafnarfjall Tindur 15,08 km

7.000

9.000

Hafnarfjall 7 tindar 23,87 km

9.000

11.000

Hafnarfjall 7 tindar og dalir 36,20 km

11.000

13.000

Hafnarfjall fjölskylduhlaup 2,93 km

1.500

2.000

 

Innifalið í þátttökugjaldi er:

  • Tímataka og númer (Tímataka verður með flögum (https://timataka.net))
  • Brautar- og öryggisgæsla
  • Drykkir og næring á drykkjarstöðvum og í marki
  • Salernisaðstaða við rásmark og endamark lengri hlaupanna
  • Verðlaun fyrir 3 efstu karla og konur
  • Þátttökuverðlaun fyrir öll þau sem ljúka hlaupinu
  • Rútufar fyrir þátttakendur í fjölskylduhlaupi
  • Frítt í sund í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi að hlaupi loknu, gegn framvísun hlaupanúmers

Afhending gagna

Hlaupagögn verða afhent í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi fimmtudaginn 25. júní kl. 18:00-20:00 og í Reykjavík föstudaginn 26. júní  kl. 13:00-18:00 (nánari upplýsingar um staðsetningu væntanlegar). Einnig verður opið fyrir afhendingu gagna í Menntaskóla Borgarfjarðar á laugardagsmorgninum til kl. 8:30.

Tímamörk

Hafnarfjall 7 tindar og dalir (36 km): Hámark 5 klst. að 4. drykkjarstöð (24 km)
Þátttakendum sem ekki ná þessum mörkum verður fylgt niður að bíl sem skilar þeim í Borgarnes. Ekki eru tímamörk í öðrum hlaupum dagsins, en markinu við MB verður lokað kl. 17:00.

Aldurstakmark

18 ár í tvö lengstu hlaupin.
14 ár í Hafnarfjall Tind

Skyldubúnaður (fyrir tvö lengstu hlaupin)

  • Margnota drykkjarmál
  • Fullhlaðinn farsími
  • „Trakk“ af leiðinni í hlaupaúri eða í síma (tenglar verða sendir út fyrir hlaup)
  • Álteppi
  • Flauta
  • Húfa/buff og hanskar
  • Vindjakki (langerma)

Skyldubúnaður (fyrir „Hafnarfjall Tindur“)

  • Margnota drykkjarmál
  • Húfa/buff og hanskar
Keppnisstjóra er heimilt að bæta við skyldubúnaði ef veðurspá gefur tilefni til. Slíkt verður þá tilkynnt hlutaðeigandi hlaupurum í síðasta lagi kvöldið fyrir hlaup.

Drykkjarstöðvar

Fjórar drykkjarstöðvar verða á lengstu leiðinni, þrjár á þeirri næstlengstu og tvær í „Hafnarfjall Tindur“. Auk þess verður boðið upp á hressingu við endamark. Drykkjarstöðin á malarveginum við rætur Hafnarfjalls er sameiginleg öllum fjallaleiðunum, bæði snemma í hlaupunum (4 km) og á bakaleiðinni (11/20/32 km). Drykkjarstöðin í Tungudal/Grjóteyrardal (15 km) nýtist á báðum lengri fjallaleiðunum og á lengstu leiðinni verður einnig drykkjarstöð neðst í Hafnardal (stutt frá Illagili, 24 km). Á drykkjarstöðvunum verður boðið upp á vatn, kók, orkudrykk, súkkulaði, banana og appelsínur. Engin pappa- eða plastmál verða þar til staðar, heldur verða hlauparar að koma með fjölnota glös til að geta fengið drykki.

Brautarvarsla og merkingar

Allar leiðir verða merktar á áberandi hátt, auk þess sem hluti hlaupaleiðarinnar á fjöllunum fylgir merktri gönguleið. Brautarvarsla verður á mikilvægustu stöðum, svo sem þar sem leiðir skilja. Þá verða tímatökuhlið á toppum Hafnarfjalls og Tungukolls. Vegna öryggis og brautarvörslu er mikilvægt að allir hlauparar hlaupi í gegnum hliðin.

Gerðar verða sérstakar ráðstafanir til þess að hlauparar verði ekki í hættu vegna bílaumferðar á Borgarfjarðarbrúnni.

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í karla- og kvennaflokkum. Í fjölskylduhlaupinu er verðlaun veitt fyrir tvo aldursflokka; annars vegar 12 ára og yngri (miðað við fæðingarár) og hins vegar eldri en 12 ára. Öll þau sem koma í mark fá auk þess þátttökuverðlaun og einnig verða veitt vegleg útdráttarverðlaun.

ITRA/UTMB-stig

Lengri hlaupin (15, 24 og 36 km) gefa ITRA-stig og UTMB-stig.

Varúð

  • Gæta þarf sérstakrar varúðar vegna umferðar þegar hlaupið er yfir Borgarfjarðarbrúna.
  • Hlauparar á leið upp Hafnarfjall þurfa að víkja vel til hægri þegar þeir mæta hlaupurum á niðurleið.
  • Hlaupin henta ekki lofthræddum.

Nánari upplýsingar

Instagramsíða hlaupsins er https://www.instagram.com/hafnarfjallultra

Enn nánari upplýsingar:
Kristinn Óskar Sigmundsson, kiddo1@simnet.is, 852 2203
Stefán Gíslason, stefan@environice.is, 862 0538

Upplýsingar um keppanda


Keppnisgreinar

27.06.2026

Skráningarfrestur: 25.06.2026 23:59
11.000 ISK (Fullt verð)
9.000 ISK (Verð til 31.05.2026 23:59)

23,87 km, 1.218 m hækkun
Hér er hlaupin sama leið upp á topp Hafnarfjalls og í „Hafnarfjall Tindur“, en í stað þess að taka kröppu vinstri beygjuna 200 m frá toppnum er haldið beint áfram með stefnu á næsta tind, Gildalshnjúk (844 m). Áfram er svo hlaupið um hina fimm tinda Hafnarfjallanna, þ.e.a.s. Miðtind, Klausturtunguhól, Katlaþúfu, Þverfell og Tungukoll (663 m). Á toppi Tungukolls eru um 13 km að baki. Þar er snúið við og sama leið hlaupin til baka 300 m eða svo. Þar er beygt til vinstri niður bratta hlíð Tungukolls, áleiðis niður í Tungudal (líka kallaðar Grjóteyrardalur). Neðst í brekkunum er drykkjarstöð (eftir u.þ.b. 15 km). Þar er tekin kröpp vinstri beygja og hlaupið niður dalinn, alla leið niður á gamla malarveginn (17 km). Þar er enn beygt til vinstri, hlaupið fram hjá hitaveitutanki og áfram eftir malarveginum, alla leið að drykkjarstöðinni við rætur Hafnarfjalls (tæpir 20 km). Þar er beygt til hægri og farin sama leið og í upphafi hlaupsins alla leið í mark við Menntaskóla Borgarfjarðar.


Skráningarfrestur: 25.06.2026 23:59
13.000 ISK (Fullt verð)
11.000 ISK (Verð til 31.05.2026 23:59)

36,20 km, 2.316 m hækkun
Hér er hlaupin sama leið og í „Hafnarfjall 7 tindar“, allt þar til komið er að drykkjarstöðinni í Tungudal (eða Grjóteyrardal), þar sem 15 km eru að baki. Þar er beygt til hægri og hlaupið inn dalinn, yfir Dalamótin, framhjá Dalamótatjörn (17 km) og áfram niður Hafnardal. Neðst í dalnum (eftir u.þ.b. 22,5 km) er farið yfir Illagil og stutt þar frá er þriðja drykkjarstöðin staðsett (24 km). Þar er sveigt til hægri og stefnan tekin á topp Hafnarfjalls sunnanfrá og lengst af hlaupið eftir fjallsbrúninni (upp Brúnir). Á toppnum eru um 28 km að baki. Þaðan er hlaupið rakleiðis niður fjallið sömu leið og í „Hafnarfjall Tindur“, að drykkjarstöðinni á malarveginum við rætur fjallsins (32 km) og svo áfram í markið hjá menntaskólanum.


Skráningarfrestur: 25.06.2026 23:59
9.000 ISK (Fullt verð)
7.000 ISK (Verð til 31.05.2026 23:59)

15,08 km, 844 m hækkun
Hlaupið hefst við Menntaskóla Borgarfjarðar. Þaðan er hlaupið sem leið liggur yfir Borgarfjarðarbrúna, þar sem gerðar verða sérstakar ráðstafanir til að gæta öryggis hlaupara. Þegar komið er yfir brúna er beygt til hægri og hlaupið meðfram ströndinni á Seleyri, en þegar rúmir 3 km eru að baki er beygt til vinstri upp farveg Ytra-Seleyrargils, hlaupið undir Vesturlandsveginn í undirgöngum og áfram í beinni stefnu að drykkjarstöð á malarveginum við rætur Hafnarfjalls. Þar eru tæpir 4 km að baki. Frá drykkjarstöðinni er hlaupið eftir malarvegi í átt að fjallinu og í boga fyrir norðurenda þess, innundir stíflu í gilinu. Þar er haldið áfram inn á göngustíg áleiðis upp fjallið, upp að „Steini“. Þar eru rúmir 5 km að baki. Áfram er svo haldið eftir gönguleiðinni upp fjallið, en ofarlega í fjallinu (eftir tæpa 7 km) er farið upp úr stígnum og fjallsbrúnin þrædd upp á topp Hafnarfjalls (7,4 km) í 791 m hæð. Þaðan er fylgt hefðbundinni leið niður fjallið með krappri vinstri beygju um 200 m frá toppnum. Eftir um 8 km geta fyrstu hlaupararnir farið að mæta þeim sem fóru sér hægar á uppleiðinni. Þar þurfa þau sem eru á uppleið að víkja til hægri, því að sums staðar er varasamt að stíga niður fyrir stíginn. Göngustígurinn er svo hlaupinn áfram niður að „Steini“ og þar beint áfram eftir fjallsbrúninni í stað þess að hlaupa niður að stíflunni. Þegar komið er niður úr mesta brattanum er fljótlega komið inn á malarveginn og skömmu síðar niður að drykkjarstöðinni þar sem um 11 km eru að baki. Marklínan bíður svo við Menntaskóla Borgarfjarðar.


Skráningarfrestur: 27.06.2026 09:30
2.000 ISK (Fullt verð)
1.500 ISK (Verð til 31.05.2026 23:59)

2,39 km, 155 m hækkun
Þetta hlaup er sérstaklega hugsað fyrir fjölskyldufólk á öllum aldri og annað fólk sem ekki treystir sér alla leið á toppinn og heim aftur. Til að einfalda umferðarstjórnun og bílastæðamál við Hafnarfjall er mælst til þess að allir þátttakendur safnist í rútu við Menntaskóla Borgarfjarðar. Þaðan fer rútan kl. 11:00 að rásmarkinu við rætur Hafnarfjalls, þar sem hlaupið verður ræst við drykkjarstöðina kl. 11:30. Þaðan er hlaupið upp malarveginn í átt að fjallinu, alla leið að stíflunni í gilinu og áfram eftir göngustígnum upp að „Steini“, alveg eins og í lengri hlaupunum. Við „Steininn“ er beygt til hægri og hlaupið eftir fjallsbrúninni eins og í „Hafnarfjall Tindur“ og komið í mark aftur við drykkjarstöðina. Rútan verður til taks meðan á hlaupinu stendur og flytur þátttakendur síðan til baka að hlaupi loknu. Verðlaunaafhending verður við menntaskólann og þar verður einnig boðið upp á veitingar. Ekkert fargjald er tekið fyrir rútuferðina.