KIA GULLHRINGURINN 2023


Greiðsluskilmálar


I. ALMENNIR SKILMÁLAR

  1. Þessir skilmálar gilda á milli þátttakanda og Víkingamótanna og felur skráning í mótið í sér samþykki þátttakanda við því að hlíta skilmálunum.
  2. Víkingamótin bera ekki ábyrgð á heilsu þátttakenda í mótum á vegum þess, á meðan móti stendur né í tengslum við það. Þá ábyrgist Víkingamótin eða starfsmenn þess og samstarfaðilar ekki tjón, hvorki líkamlegt né fjárhagslegt, sem þátttakendur verða fyrir vegna þátttöku.
  3. Víkingamótiunum er heimilt að endurskoða eða breyta skilmálum þessum vegna ófyrirsjáanlegra ástæðna, s.s. náttúruhamfara eða veðurs. Verði breytingar á skilmálum verða þær tilkynntar til þátttakenda með tölvupósti.
  4. Sá aðili sem skráir fleiri en sjálfan sig í mótið samþykkir að vera ábyrgur fyrir að kynna skilmála fyrir þeim sem hann skráir. Ef þau hin sömu eru ekki tilbúin til að samþykkja skilmálana verður skrifleg athugasemd að berast mótshaldara innan tveggja sólarhringa frá skráningu.
  5. Sá sem skráir sjálfan sig og aðra í mótið samþykkir að veita mótshaldara heimild til að nota skráningarupplýsingar, með þeim fyrirvara að skráning eða notkun upplýsinganna sé eðlilegur þáttur í starfsemi mótshaldara. Hér er átt við birtingu úrslita, almennar póstsendingar, tölvupóst og upplýsingar á heimasíðu.
  6. Persónuupplýsingar sem þátttakendur gefa upp verða meðhöndlaðar af fullum trúnaði og ekki miðlað til þriðja aðila. Allar myndir sem teknar eru af opinberum ljósmyndurum mótsins af þátttakendum þess áskilur mótshaldari sér rétt til að nota í markaðs- og kynningarefni.
  7. Mótshaldari sendir þátttakendum tölvupósta með ýmsum mikilvægum tilkynningum eins og t.d. upplýsingum um viðkomandi mót, breytingar á dagskrá og skráningu. Alltaf gefst kostur á að skrá sig af þeim póstlista.

II. GREIÐSLUSKILMÁLAR

  1. Með greiðslu þátttökugjalda samþykkir þátttakandi greiðsluskilmála Víkingamótanna.
  2. Þátttökugjöld fást ekki endurgreitt.
  3. Ekki er hægt að geyma þátttökugjöld fram á næsta ár.
  4. Ef mótið fer ekki fram vegna ófyrirsjáanlegra atburða, svo sem náttúruhamfara, covid, veðurs o.s.frv., mun mótshaldari endurgreiða 50% af þátttökugjöldum.
  5. Greiðsla fer fram í gegnum greiðslusíðu Valitor

III. Lög og varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Tailwind ehf vegna Víkingamótana kt. 540122-0590, Háheiði 13, bil 5, 800 Selfoss á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.