Grindavik Volcano Boost 2026


Keppnishaldari

Tailwind ehf
Kt. 540122-0590
info@vikingamot.is

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Grindavík Volcano Trail 2026

Grindavík Volcano Trail verður haldið 12. ágúst 2026

Hlaupið fer um landslag sem varð til í eldgosunum 2021–2025 og á sama tíma og sólmyrkvi á sér stað. Brautin leiðir þátttakendur um eitt magnaðasta og umtalaðasta náttúrusvæði Íslands þar sem eldgos og jarðhræringar hafa mótað landslagið á einstakan hátt síðustu ár.

Leiðirnar liggja um hrjóstrugt hraun, nýjar hraunbreiður og stórbrotið landslag sem gefur hlaupurum tækifæri til að upplifa náttúruöflin í návígi. Viðburðurinn byggir á áralangri reynslu af skipulagningu utanvegahlaupa á Reykjanesskaga og býður upp á krefjandi og eftirminnilega upplifun fyrir hlaupara á öllum getustigum.

Boðið verður upp á þrjár vegalengdir, 5 km, 20 km og 50 km

Sérstakt verður að hlaupið fer fram miðvikudaginn 12. ágúst 2026, sama dag og heildarsólmyrkvi verður sýnilegur yfir hluta Íslands. Hlauparar á lengri vegalengdunum munu því eiga möguleika á að upplifa þetta einstaka náttúrufyrirbæri á meðan keppni stendur yfir – augnablik sem fáir fá tækifæri til að upplifa.

Grindavík Volcano Trail sameinar ævintýri, áskorun og einstaka náttúru.

Þátttökugjald

  • 5 km: 3.990 kr.
  • 20 km: 7.990 kr.
  • 50 km: 17.900 kr.
Upplýsingar um keppanda



Keppnisgreinar

12.08.2026

Skráningarfrestur: 12.08.2026 10:00
Verð: 7.990 ISK


Skráningarfrestur: 12.08.2026 13:30
Verð: 3.990 ISK


Skráningarfrestur: 12.08.2026 09:50
Verð: 17.900 ISK