Víðavangshlaup Fætur toga og Framfara 2026


Keppnishaldari

Framfarir / Tímataka ehf
Kt. 430687-1239
Borgartúni 24
105 Reykjavík
Burkni Helgason
Símanr.: 660 0078
burknih@gmail.com

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Í ár

Fætur toga og Framfarir, hollvinafélag millivegalengda- og langhlaupara, kynna 23. víðavangshlauparöð sína á haustdögum 2026.
Hlaupin eru þrjú og með sama sniði og undanfarin ár, hefjast kl. 10:00 á laugardagsmorgnum í september og október.

Um tvær vegalengdir er að ræða, „stutt“ og „langt“ hlaup, og hefst styttra hlaupið á undan. Stutta hlaupið er yfirleitt um 1km en það lengra 6-7km. Vegalengdirnar eru settar upp með það fyrir augum að höfða til sem flestra, bæði millivegalengda- og langhlaupara og hlaupara á öllum aldri á öllum getustigum.

Keppnisgjald hvers hlaupadags er einungis 1000 kr, og gildir hvort sem er í annað hlaupið eða bæði.

Eftirfarandi eru staðsetningar og dagsetningar víðavangshlaupa í Reykjavík haustið 2026:
  1. 3.október við Kjarrhólma í Kópavogi
  2. 10. október á Frisbígolfvellinum í Fossvogi
  3. 31. október við Borgarspítalann í Reykjavík
Stigakeppni er í flokkum karla og kvenna, og drengja og stúlkna 16 ára og yngri. Þáttakendur mega og eru hvattir til að taka þátt í báðum hlaupum á sama degi.
Bæði hlaup á gefnum degi gilda til stiga einstaklings í stigakeppninni.

Í ár heyr sveitakeppnin endurkomu sína með nokkuð breyttu sniði: 
* Mynda má sveitir þvert á aldursflokka og kyn
* Keppt er um hæsta stigafjöldann frekar en tíma eða sæti
* 3 stigahæstu einstaklingar skráðir í hverja sveit telja á hverjum keppnisdegi

Verðlaun verða veitt fyrir stigahæstu sveitina eftir síðasta hlaup.
Nánari upplýsingar veitir Burkni Helgason, burknih@gmail.com, s. 6600078
Lögmenn Lækjargötu fá sérstakar þakkir fyrir aðkomu sína að framkvæmd hlaupanna.
Upplýsingar um keppanda


Keppnisgreinar

10.10.2026

Skráningarfrestur: 10.10.2026 13:00
Verð: 1.000 ISK


Skráningarfrestur: 10.10.2026 13:00
Verð: 1.000 ISK

Hringurinn er allur á grasi, ræst Kópavogsmegin. Hlaupinn er 1 hringur (900m) í stutta hlaupinu en 7 hringir (6,3km) í því langa. Bílastæði eru við Fagralund. Kort af leiðinni


31.10.2026

Skráningarfrestur: 31.10.2026 13:00
Verð: 1.000 ISK


Skráningarfrestur: 03.10.2026 13:00
Verð: 1.000 ISK

Hringurinn er 1,1 km að lengd, hæðóttur og á köflum mýrlendur, alfarið á grasi. Hlaupinn er 1 hringur réttsælis (1100m) í stutta hlaupinu en 6 (6,6km) í því langa. Bílastæði eru við spítalann. Kort af leiðinni