Fjölskylduhlaup Breiðabliks og Powerade
Fjölskylduhlaup Breiðabliks og Powerade – laugardaginn 10. maí kl. 14:00Við bjóðum alla iðkendur Breiðabliks og fjölskyldur þeirra hjartanlega velkomin í skemmtilegt fjölskylduhlaup laugardaginn 10. maí kl. 14:00 við Kópavogsvöll. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir – hvort sem þú vilt hlaupa með eða hvetja úr stúkunni!
Tvær vegalengdir í boði, 2,5 km leið um Kópavogsdal og 1 km fyrir þau sem kjósa styttri vegalengd.
Dagskrá:- Kl. 12:00 – Hægt að nálgast hlaupanúmer í stúkunni við Kópavogsvöll. Við hvetjum ykkur til að mæta tímanlega!
- Kl. 14:00 – Upphitun með Íþróttaálfinum.
- Strax að því loknu hefst hlaupið – hægt er að velja á milli tveggja vegalengda:
Eftir hlaupið verður boðið upp á létta hressingu fyrir alla þátttakendur.
Við hvetjum allar fjölskyldur til að mæta í grænu, hreyfa sig saman og njóta samveru og útivistar!