Fjarðarhlaupið 2026


Keppnishaldari

Skíðafélag Ólafsfjarðar
Kt. 591001-2720
Tindaöxl
625 Ólafsfjörður
Kristján Hauksson
Símanr.: +354 892 0774
fjardargangan@gmail.com

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Fjarðarhlaupið

Fjarðarhlaupið verður haldið laugardaginn 15. ágúst 2026 kl 10:00.

32 km Fjallahlaup (17 ára og eldri)
Heildarhækkun: 1.291m
Drykkjarstöðvar: 2
GPX track: væntanlegt
ITRA stig: 2

Eftir frábær viðbrögð frá hlaupinu 2025, metþátttöku og brautarmet, endurtökum við leikinn með alvöru fjallahlaupi frá Siglufirðir til Ólafsfjarðar. Ræst verður frá Sigló Hótel og hlaupið sem leið liggur inn Hólsdal í Siglufirði og upp í Hólsskarð. Þar er stefnan tekin niður Ámárdal, niður í Héðinsfjörð að Héðinsfjarðargöngum. Þá er stefnan sett á Víkurdal yfir Rauðskörð og niður Ytri-árdal að Kleifum í Ólafsfirði. Endamark er í miðbæ Ólafsfjarðar og er leiðin alls um 32 km löng. Farið yfir tvo fjallgarða sem báðir eru í um 600 m hæð yfir sjó.
Video track af fyrri hluta.....

18 km Fjallahlaup (12 ára og eldri)
Heildarhækkun: 656m
Drykkjarstöðvar: 1
GPX track: væntanlegt
ITRA stig: 1

Ræst er frá Héðinsfjarðargöngum og hlaupið sem leið liggur að Víkurdal, hlaupið inn dalinn og yfir Rauðskörð (600m) og niður Ytri-árdal að Kleifum í Ólafsfirði. Endamark er í miðbæ Ólafsfjarðar og er leiðin alls rúmlega 18 km löng. Hér mælum við með að börn séu í fylgd með fullorðnum.
Video track af 18km leiðinni....  

NÝTT-NÝTT 12 km utanvegahlaup
Heildarhækkun: 370m
Drykkjarstöðvar: 0
GPX track: 12km utanv 2025
Ræst er frá Kleifum í Ólafsfirði og hlaupið sem leið liggur inn Syðri Árdal. Hlaupið er inn fyirr "hóla" í Syðriárdal, þar farið yfir ánna og hlaupið niður aftur að Kleifum. Endamark er í miðbæ Ólafsfjarðar og er leiðin alls rúmir 12 km. Hentar sérstaklega vel fyrir þá sem eru að byrja í utanvegahlaupum, flott áskorun!

5/10 km skemmtiskokk
Ræst er í miðbæ Ólafsfjarðar og hlaupinn 5 eða 10 km hringur á götum og stígum. Hlaup sem hentar öllum.
Video track af skemmtiskokkinu 5/10km

NÝTT NÝTT Gönguferð Héðinsfjörður - Rauðskörð - Kleifar Ólafsfirði
Gönguferð undir leiðsögn Maríu Bjarney Leifsdóttur, tilvalin valkostur fyrir göngufólk eða þá sem treysta sér ekki til að hlaupa meiri hluta leiðarinnar. 

Barnahlaup 500m, 1.000m, 1.500m
Ræst er í miðbæ Ólafsfjarðar.. Hlaupið ætlað 5 ára og yngri, 6-8 ára og 9-10 ára.

Vegalengdir og gjaldskrá í Fjarðarhlaupinu:
Barnahlaup ætlað 10 ára og yngri, 1.000 kr.
5/10 km, skemmtiflokkur fyrir alla, þátttakandi ræður vegalengd, 4.000 kr.
Gönguferð með leiðsögn 5.000 kr.
12 km, utanvegahlaup 12 ára og eldri, 5.000 kr.
18 km, fjallahlaup 12 ára og eldri, 8.000 kr. 
32 km, fjallahlaup 17 ára og eldri, 12.000 kr.  

Eins og venja er með Fjarðargönguna þá verður fyrst og fremst hrikalega gaman hjá okkur í Fjarðarhlaupinu! Flott umgjörð, tónlist, veitingar eftir keppni, allir fá þátttökuverðlaun en fyrst og fremst höfum við gaman!

Dagskrá fyrir laugardaginn 15. ágúst:
32km Siglufjörður - Ólafsfjörður
Kl: 09:00 Afhending gagna við Sigló Hótel
kl: 10:00 Ræst út frá Sigló Hótel
Leiðin er merkt alla leið nema fyrstu km sem eru á malbiki og svo góðum slóða.
Meðfylgjandi er svo GPX skrá fyrir leiðina.
Drykkjarstöð er í Héðinsfirði og önnur eftir Rauðskörð í Ytriárdal. Við bjóðum upp á vatn, Leppin, Klaka, súkkulaðirúsínur og banana.
Álteppi, flauta og hlaðinn sími skilyrði!
Tímamörk í drykkjarstöð Héðinsfirði 2 klst og 20 min.

18km Héðinsfjörður - Ólafsfjörður
kl: 10:00 Afhending gagna í Héðinsfirði
kl: 11:00 Ræst út í Héðinsfirði.
Leiðin er merkt alla leið. Meðfylgjandi er svo GPX skrá fyrir leiðina.
Drykkjarstöð eftir Rauðskörð í Ytriárdal. Við bjóðum upp á vatn, Leppin, Klaka, súkkulaðirúsínur og banana.
Álteppi, flauta og hlaðinn sími skilyrði!

12km Utanvegahlaup
kl: 11:00 Afhending gagna, Kleifum Ólafsfirði
kl. 11:45 Ræst út frá Kleifum
ATH EKKI DRYKKJARSTÖÐ

kl 09:00 Gönguferð úr Héðinsfirði með Maríu Bjarney

5/10 km skemmtiskokk
kl 11:45 Afhending gagna við Kaffi Klöru
kl 12:15 Ræst út frá Kaffi Klöru

Barnahlaup 10 ára og yngri.
Skráning og ræsing við Kaffi Klöru
kl 12:20 Ræst út frá Kaffi Klöru

Endamark er við Kaffi Klöru þar sem verður frábær stemmning!

Verðlaunaafhending kl 15:00 við Kaffi Klöru Ólafsfirði

Við biðjum ykkur um að fara varlega á fjöllum og óskum ykkur öllum góðs gengis og skemmtunar!