Fjarðargangan 2026


Keppnishaldari

Skíðafélag Ólafsfjarðar
Kt. 591001-2720
Tindaöxl
625 Ólafsfjörður
Kristján Hauksson
Símanr.: +354 892 0774
fjardargangan@gmail.com

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Fjarðargangan 2026

Uppfært 5.feb 2026.
ATH vegna snjóleysis er því miður afar ólíklegt að gengið verði í miðbæ Ólafsfjarðar eins og undanfarin ár. Stefnum við á að ná að halda göngu á Lágheiði innst í Ólafsfirði, um 20 min akstur frá bænum. 
Nýjustu upplýsingar á facebook hér....

Fjarðargangan fer fram á Ólafsfirði 14. febrúar 2026 og við fögnum 40 ára afmæli!
Eins og undanfarin ár bjóðum við upp á frábæra upplifun í Fjarðargöngunni. Brautarstæðið er einstakt og liggur meðal annars eftir götum Ólafsfjarðarbæjar. Stemmningin er frábær og allir mættir til að skora á sjálfan sig, taka þátt og hafa gaman. Vissulega er keppni líka, frábær verðlaun, happdrætti, kjötsúpa, grænmetissúpa, úrdráttarverðlaun og ég veit ekki hvað og hvað.

Við byrjum á föstudagskvöldinu með “NÆTUR” Fjarðargöngu og bjóðum við upp á bæði 15 km fyrir 17 ára og eldri auk 7,5 km sem er opið fyrir alla sem treysta sér til og langar að prófa. Frábær upplifun að ganga að kvöldi til og brautin öll nánast upplýst. Höfuðljós er að sjálfsögðu skylda.

Laugardaginn 14.febrúar verður svo "aðal" Fjarðargangan þar sem öllu verður til tjaldað. Reyndar munum við ekki spara neitt við nætur gönguna, en leggjum jú aðal áherslu á laugardaginn með alvöru afmælisveislu.

Stemmningin er mögnuð í Fjarðargöngunni, öll aðstaða í miðjum bænum, startað í miðbænum, einstök umgjörð og við hlökkum til að taka á móti ykkur.

Fjarðargangan 20 km fyrir 17 ára og eldri (Íslandsganga SKÍ)
Skráningargjald 10.000 kr. til og með 12.febrúar, eftir það hækkar skráningargjald í 14.000 kr. Skráningu lýkur 13.febrúar kl. 23:59. Dregið í happdrætti úr skráðum þátttakendum 6.des og 2.jan. Allir sem taka þátt í 20 km fá veglegan verðlaunapening og halda númeri sínu til minningar.
Fjarðargangan 10 km fyrir 13 ára og eldri
Skráningargjald 7.000 kr. til og með 12.febrúar, eftir það hækkar skráningargjald í 9.000 kr. Skráningu lýkur 13.febrúar kl. 23:59. Dregið í happdrætti úr skráðum þátttakendum 6.des og 2.jan. Allir sem taka þátt í 10 km fá verðlaunapening og halda númeri sínu til minningar.
5 km ekkert aldurstakmark
Skráningargjald 3.000 kr. Skráningu lýkur 13.febrúar kl. 23:59, allir þátttakendur fá verðlaunapening og halda númeri sínu til minningar.
Barnagangan 500m
Skráningargjald 1.000 kr. Skráningu lýkur 13.febrúar kl 23:59, allir þátttakendur fá verðlaunapening og halda númeri sínu til minningar.

DRÖG að dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Föstudagur 13.febrúar
16:00 - 20:30 Móttaka keppnisgagna í TJARNARBORG
16:00 - 20:30 Craftverslun með sölubás í Tjarnarborg
16:00 Opnun sögusýningar skíðaíþróttarinnar á Ólafsfirði í Pálshúsi.

Laugardagur 14. febrúar
08:00 - 10:00 Móttaka keppnisgagna í Tjarnarborg
08:00 - 10:30 Craftverslun með sölubás í Tjarnarborg
10:30 Barnagangan 2026 ræst
11:00 Fjarðargangan 2026 ræst
Hamborgarar að lokinni keppni
15:00 Kaffisamsæti og verðlaunaafhending í Tjarnarborg
Verðlaunað er í eftirfarandi aldursflokkum:
20 km, 17-34 ára, 35-49 ára, 50-64 ára, 65 ára og eldri, kvenna og karla.10 km, þrjú efstu sæti kvenna og karla
Úrdráttarverðlaun verða dregin út í kaffisamsætinu kl 15:00
Craftverslun með sölubás í Tjarnarborg.

Nánari upplýsingar:
Facebook: Fjarðargangan

Verið hjartanlega velkomin í Fjallabyggð!

Upplýsingar um keppanda


Keppnisgreinar

14.02.2026