Hjólreiðafélag Akureyrar
Kt. 560712-0300
Skólastígur 4
600 Akureyri
Sunna Axelsdóttir
formadur@hfa.is
Ungdúró
Skráningarflokkar eru U9, U11, U13, U15, U17 og Junior.
Keppendur undir 18 ára eru alfarið á ábyrgð foreldra/forráðamanna. Gögn verða ekki afhent keppanda yngri en 18 ára nema ábyrgðaraðili sé til staðar. Í Ungdúró 4-8 ára er krafa um að foreldri sé með keppanda allan tímann.
Enduro
Skráningarflokkar eru U17, Junior, A- flokkur, B-flokkur, Master 35+, rafhjólaflokkur og Skemmtiflokkur.
Keppendur undir 18 ára eru alfarið á ábyrgð foreldra/forráðamanna. Gögn verða ekki afhent keppanda yngri en 18 ára nema ábyrgðaraðili sé til staðar.
Fylgdarmanns er krafist fyrir alla keppendur í Enduro sem eru undir 18 ára aldri. Keppendur í Junior - U19 geta sótt um undanþágu með samþykki forráðamanns og skulu hafa samband við mótsstjórn í síðasta lagi fimmtudaginn 16. júlí.
Keppendur í U17 þurfa sérstakt leyfi frá mótsstjórn til þess að keppa í þessu móti og þurfa fylgdarmann í braut. Keppendur á yngra ári í Junior flokki þurfa fylgdarmann í braut.
Skemmtiflokkur er nýr flokkur í Enduro. Aðilar í Skemmtiflokk fá ekki tímatökuflögu, heldur mæta til þess að rúlla brautirnar og hafa gaman saman.
Fjallabrun
Skráningarflokkar eru U11, U13, U15, U17, Junior. A-flokkur, B-flokkur, Master 35+ og rafhjólaflokkur.
Keppendur undir 18 ára eru alfarið á ábyrgð foreldra/forráðamanna. Gögn verða ekki afhent keppanda yngri en 18 ára nema ábyrgðaraðili sé til staðar.
Ungdúró - Keppt verður í brautum í Hlíðarfjalli sem verða settar upp og ákveðnar fyrir mótið. Brautirnar verða gefnar út þegar nær dregur móti. Hver braut afmarkast af merktu upphafi og endi, þar sem keppendur hjóla í gegnum tímatökuhlið. Yngri flokkar fara færri brautir en þeir eldri. Allir hafa tímatökuflögu sem þeir hafa leigt sjálfir eða keypt og úrslit ráðast af samanlögðum tíma úr öllum keppnisbrautum.
Við biðjum keppendur að skoða brautina vel áður en keppt er og nota góðan hlífðarbúnað, s.s. full-face hjálm, brynjur, hnéhlífar, gleraugu og annan viðeigandi búnað.
Enduro - Keppt verður í brautum í Hlíðarfjalli og yfir í Kjarnaskóg sem verða settar upp og ákveðnar fyrir mótið. Brautirnar verða gefnar út þegar nær dregur móti. Fjöldi og erfiðleikastig brauta fer eftir keppnisflokkum. Hver braut afmarkast af merktu upphafi og endi, þar sem keppendur hjóla í gegnum tímatökuhlið. Allir hafa tímatökuflögu sem þeir hafa leigt sjálfir eða keypt og úrslit ráðast af samanlögðum tíma úr öllum keppnisbrautum.
Við biðjum keppendur að skoða brautina vel áður en keppt er og nota góðan hlífðarbúnað, s.s. full-face hjálm, brynjur, hnéhlífar, gleraugu og annan viðeigandi búnað.
Fjallabrun - Keppt verður í einni braut í Hlíðarfjalli, "Downhill brautinni". Í A-flokki eru farnar tvær ferðir í braut, fyrri ferðin er til þess að raða í rásröð fyrir seinni ferðina. Úrslit ráðast af stystu tímum í seinni ferð. Í öðrum flokki eru hjólaðar tvær ferðir í brautinni og betri ferðin gildir til úrslita. Allir hafa tímatökuflögu sem þeir hafa leigt sjálfir eða keypt og úrslit ráðast af samanlögðum tíma úr öllum keppnisbrautum.
Samkvæmt keppnisreglum HRÍ skal nota hjálm sem ver allt andlit (full-face) bæði í keppni og við æfingar. Hjálmurinn verður að vera með skyggni. Opnir hjálmar án kjálkahlífar eru bannaðir. Einnig skal vera með augnhlífar (gogglur eða hlífðargleraugu). Sérstaklega er mælt með eftirfarandi aukahlífðarbúnaði:
A. Bak-, olnboga-, hné- og axlahlífum úr stífum efnum.
B. Vörn fyrir háls og hryggjarliði
C. Vörn fyrir sköflunga og læri
D. Víðum buxum úr rifvörðu efni með innbyggðum hlífum fyrir hné og kálfa, eða stuttbuxum úr rifvörðu efni ásamt hné og kálfahlífum
E. Síðerma treyju
F. Hönskum
Skráning á alla viðburðina fer fram á þessari síðu. Undir hverjum flokki er hægt að sjá keppnisgjöldin.
Við vekjum athygli á pakkaafsláttum sem koma fram á staðfestingarsíðu við skráningu - veittur er afsláttur ef keppandi skráir sig í fleiri en eitt mót.
Athugið að fyrir öll mót þurfa keppendur sjálfir að sjá um að kaupa eða leigja sér tímatökuflögu, sjá hér: https://netskraning.is/flogur/.
Ungdúró 17. júlí
Enduro 18. júlí
Fjallabrun 19. júlí
Ungdúró 17. júlí - Afhending gagna kl. 17 á mótsdegi. Athugið að gæta að því hvort tímatökuflaga hafi verið pöntuð.
Enduro 18. júlí - Afhending gagna verður kl. 11-12 á mótsdegi. Athugið að gæta að því hvort tímatökuflaga hafi verið pöntuð.
Fjallabrun 19. júlí - Afhending gagna verður kl. 11-12 á mótsdegi. Athugið að gæta að því hvort tímatökuflaga hafi verið pöntuð.