Fimmskóga gravel 2026


Keppnishaldari

Hjólreiðafélag Akureyrar
Kt. 560712-0300
Skólastígur 4
600 Akureyri
Sunna Axelsdóttir
hfa@hfa.is

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Alvöru malarhjólreiða viðburður með því besta sem norðurland hefur uppá að bjóða - Ride the North

Tími og staðsetning

8. ágúst í Kjarnaskógi


9:00

Ræsing í Hamrinum

10:30

Ræsing í Klöppinni

10:31

Ræsing í skemmtiflokk 

12:00

Ræsin í rafmagnsflokk

12:05

Ræsing í Mölinni

15:30

Verðlaunafhending


Afhending keppnisgagna

Afhending gagna kl. XX á mótsdegi. Athugið að gæta að því hvort tímatökuflaga hafi verið pöntuð.

Lýsing, flokkar og leiðir:

Fimm skóga gravel er viðburður þar sem boðið er upp á bæði keppnisflokka og skemmtiflokka og áherslan er á gleði og gaman. Flestar tegundir hjóla eru leyfð og ekki krafist sérstaks hlífðarbúnaðs fyrir utan að það er hjálmaskylda í öllum flokkum. Í Mölinni verður boðið upp á rafmagnshjólaflokk. 

Útfærsla leiða er birt með fyrirvara. Þátttakendur skulu kynna sér leiðir mjög vel fyrir ræsingu og hlaða upp GPS-skrá í tækið sitt (úr/hjólatölvu) fyrir keppni ef möguleiki er á. Leiðirnar eru merktar að hluta til en þátttakendur eru á eigin ábyrgð í braut. 

Drykkjarstöðvar eru á leiðinni og skulu þátttakendum kynna sér vel staðsetningu á þeim.


Mölin: Tæplega 40 km leið sem hefst og endar í Kjarnaskóg. Hjólað er yfir gömlu brýrnar og farið upp Knarrarbergsbrekkuna, niður Leifsstaðabrekkuna og upp Veigastaðaveginn þar sem haldið er upp á topp á Vaðlaheiði. Þar er snúið við og haldið sömu leið til baka í mark. 

Mölin er leið fyrir fólk sem leitar að áskorun, vill njóta þess besta sem þekkist í hjólreiðum og reyna á sig upp brekkur sem eru samt ekki of langar. Brautin hentar þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í malarhjólreiðum, hvort sem það leitar að keppni eða áskorun eða bara til að taka þátt í skemmtilegum viðburði og gera sér glaðan dag. 

Boðið er upp á rafmagnshjólaflokk / skemmtiflokk.

Leiðarlýsing: https://www.strava.com/routes/3387813945971040632 


Klöppin: 82 km leið sem fer yfir Vaðlaheiðina og inn í Vaglaskóg þar sem hjólaður er hringur í gegnum Lundsskóg og Þórðarstaðaskóg að Illugastöðum og þaðan aftur upp og yfir Vaðlaheiðina sömu leið til baka. 

Klöppin er fyrir lengra komna, en á færi flestra sem hafa reynslu af hjólreiðum eða öðrum úthaldsíþróttum. Gott klifur í byrjun og á lokakaflanum sér til þess að öll koma sveitt og sæl í endamark, búin að sigrast á leiðinni og sjálfum sér. 

Boðið er upp á skemmtiflokk (fondo) fyrir þá sem er að leita að alvöru áskorun en eru ekki í keppnishug eða ef t.d. vinahópurinn vill fara saman í skemmtilegt ævintýri. Skemmtiflokkur ræsir skömmu eftir keppnisflokknum. Allir fá tímana sína skráða og fá þátttökuverðlaun. 

Leiðarlýsing: https://www.strava.com/routes/3387813482433481954 


Hamarinn: 130 km leið sem fer sömu leið og Klöppin nema þegar þátttakendur koma niður Vaðlaheiðina beygja þeir til norðurs og hjóla Skuggabjargarskóg, Dalsmynni og þaðan inn í Vaglaskóg. Leiðin liggur um stóran hluta Fnjóskadals og er krefjandi og tæknileg en ekki of löng. Hamarinn er fyrir þá allra hörðustu sem vilja alvöru áskorun og keppast um hver sé allra mesti hamarinn. 

Leiðarlýsing: 

https://www.strava.com/routes/3506711214412473764 - 130 


Einnig verður krýndur Brekkukóngur og Brekkudrotting óháð vegalengdum (gildir ekki um rafmagnshjólaflokk). Til að vera með þarf að vera með strava aðgang og æfinguna opna öllum. Sá sem er með hraðasta tímann á merktu “segmenti” upp Vaðlaheiðina á keppnisdegi verður krýndur brekku-kóngur eða drottning.


Tímabil skráningar og skráningargjald

Til miðnættis 31.07.26:  

Mölin: 11900 kr 

Klöppin: 14900 kr 

Hamarinn: 18900 kr 


Frá 1. ágúst hækkar skráningargjald í: 

Mölin: 13900 kr 

Klöppin: 16900 kr 

Hamarinn: 20900 kr 


Skráningu lýkur á miðnætti 6. ágúst. 


Innifalið í miða er þátttökugjald, miði í skógarböðin, matur og drykkir á drykkjarstöðvum, hamborgari og drykkir í marki. Þátttökuverðlaun eru í boði fyrir alla, þá verða veitt verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í aldursflokkum í hamrinum, klöppinni og mölinni og útdráttarverðlaun í boði fyrir allar leiðir og flokka. 


*Komist þátttakandi ekki vegna veikinda, meiðsla, ferðatafa eða annarra persónulegra ástæðna fæst þátttökugjald ekki endurgreitt.
Leyfilegt er að gera nafnabreytingu á skráningu til 7. ágúst, eða þar til afhending gagna hefst. Þátttakandi skal láta mótstjóra vita af breytingum með því að senda tölvupóst. 


**Mótshaldari áskilur sér rétt til að breyta leið, dagskrá, tímasetningu eða fyrirkomulagi keppninnar vegna veðurs, náttúruhamfara, lokana, öryggisástæðna eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna. Í þeim tilfellum fæst þátttökugjald ekki endurgreitt en býðst að færa skráningu fram að næsta móti.


Með skráningu samþykkir þátttakandi þessa skilmála.


Upplýsingar um keppanda

Keppnisgreinar

08.08.2026

Skráningarfrestur: 08.08.2026 18:00
20.900 ISK (Fullt verð)
18.900 ISK (Verð til 31.07.2026 23:59)


Skráningarfrestur: 08.08.2026 18:00
16.900 ISK (Fullt verð)
14.900 ISK (Verð til 31.07.2026 23:59)


Skráningarfrestur: 08.08.2026 18:00
13.900 ISK (Fullt verð)
11.900 ISK (Verð til 31.07.2026 23:59)


Skráningarfrestur: 08.08.2026 18:00
13.900 ISK (Fullt verð)
11.900 ISK (Verð til 31.07.2026 23:59)