Eyfahlaupið 2026

Íslenska English

Keppnishaldari

Héraðssambandið Hrafna-Flóki
Kt. 630893-2169
450 Patreksfirði
Ásgeir Sveinsson
Símanr.: 896-2019
hhf.framkvaemdastjori@gmail.com

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Söluvarningur

Sjómannadagurinn á Patreksfirði 2026


Eyfahlaupið er hlaup í anda gleði, samveru og jákvæðni þar sem öll geta tekið þátt, hvort sem markmiðið er að njóta hreyfingarinnar eða keppa við sjálfan sig og aðra. Hlaupið er nefnt í höfuðið á Sveini Eyjólfi Tryggvasyni frá Lambavatni, oftast kallaður Eyfi, sem var þekktur fyrir brosmildi, hjálpsemi og óþrjótandi jákvæðni, gildi sem við viljum að endurspeglist í hverju skrefi þátttakenda. 

Eyfi var hlaupari af guðs náð. Hvort sem það var á hlaupabrautinni á Völuvelli, í sveitinni á Rauðasandi eða í vinnunni. Þá mátti sjá hann spretta úr spori. Til gamans má geta að Eyfi á enn héraðsmet í bæði hálfu og heilu maraþoni 17 ára og eldri.

Boðið er upp á fjölbreyttar vegalengdir sem henta öllum aldurshópum og getu. Fyrir þá sem vilja njóta án tímatöku er skemmtiskokk í boði, en fyrir keppnisfólk eru tímatökulengdir þar sem hægt er að setja sér markmið og takast á við áskorun. Eyfahlaupið er samstarfsverkefni Sjómannadagsráðs á Patreksfirði, Héraðssambandsins Hrafna-Flóka og HHF íþróttafélags.


Hlaupaleiðir og vegalengdir

2,5 km, 5 km og 10 km fara sömu leið:

  • 2,5 km: einn hringur, án tímatöku

  • 5 km: tveir hringir, með tímatöku

  • 10 km: fjórir hringir, með tímatöku

Start og mark er fyrir neðan Íþróttahúsið Bröttuhlíð á Patreksfirði. Ræst er við Bröttuhlíð, hlaupið niður að lögreglustöð, þar er beygt niður til hægri og hlaupið eftir Strandgötu í átt að Vatneyri. Við gatnamótin er beygt til vinstri inn á Aðalstræti og hlaupið að Vatneyrarbúð. Þar er snúið við og hlaupið aftur upp Aðalstræti að Íþróttahúsinu Bröttuhlíð.

1 km skemmtiskokk hefst einnig fyrir neðan Íþróttahúsið Bröttuhlíð. Hlaupið er að Aðalstræti 83, þar verður merki með HHF fána, þaðan er snúið við og hlaupið sömu leið til baka. Skemmtiskokkið 1km og 2,5km hentar vel byrjendum, fjölskyldum og þeim sem vilja taka þátt á eigin forsendum. Lengri vegalengdirnar eru fyrir þá sem vilja keppa eða ná sínum besta árangri.


Tímasetning

Hlaupið fer fram fimmtudaginn 4. júní og verður einn af upphafsviðburðum Sjómannadagshelgarinnar á Patreksfirði.

  • 10 km ræst kl. 16:50

  • 5 km ræst kl. 17:10

  • Skemmtiskokk ræst kl. 17:20

Þátttakendur eru hvattir til að mæta tímanlega og njóta stemningarinnar fyrir hlaup.


Skráning og þátttökugjald

Skemmtiskokk (1km og 2,5km): frítt

Tímataka (5km og 10km):

  • 1.500 kr. fyrir 16 ára og yngri

  • 3.000 kr. fyrir 17 ára og eldri

Hægt er að kaupa Eyfahlaupsbol til miðnættis 14. maí
  • 5.500 kr. 16 ára og yngri
  • 6.500 kr. 17 ára og eldri

Eftir miðnætti 14. maí er ekki hægt að kaupa bol, en enn er hægt að skrá sig í hlaupið.
Skráningu lýkur á hlaupadegi 4. júní kl 12:00.


Verðlaun

Allir þátttakendur fá þátttökuverðlaun að hlaupi loknu.
Auk þess verða veitt verðlaun í 5km og 10km í kvk og kk flokki, fyrir 1.–3. sæti í eftirfarandi aldursflokkum:

  • 11 ára og yngri

  • 12-16 ára

  • 17 ára og eldri


Andi hlaupsins

Eyfahlaupið snýst ekki aðeins um tíma og árangur, heldur líka um upplifun, gleði og samveru. Við hvetjum alla til að taka þátt á sínum forsendum og muna að:

  • Brosa í hverju skrefi eins og Eyfi gerði

Upplýsingar um keppanda

Keppnisgreinar

04.06.2026

Skráningarfrestur: 04.06.2026 12:00
3.000 ISK (Fullt verð)
1.500 ISK (Verð til 04.06.2026 12:00 | 16 ára og yngri)


Skráningarfrestur: 04.06.2026 12:00


Skráningarfrestur: 04.06.2026 12:00


Skráningarfrestur: 04.06.2026 12:00
3.000 ISK (Fullt verð)
1.500 ISK (Verð til 04.06.2026 12:00 | 16 ára og yngri)