Frjálsíþróttadeild UMF Aftureldingar
Kt. 460974-0119
frjalsar@afturelding.is
Nú er aldeilis tilefni til að draga skítugu fötin fram úr
skápnum. Drullu- og hindrunarhlaup Krónunnar fer fram í Mosfellsbæ laugardaginn
15. ágúst. Í hlaupinu vinnur fjölskyldan, saumaklúbburinn, vinahópurinn og
húsfélagið að því að komast í mark í skítugasta hlaupi ársins. Viðburðurinn er
fyrir alla fjölskylduna og eða einstaklinga. Hér skiptir tíminn engu máli. Góða
skapið og samhent gleði þarf til að komast í gegnum allar hindranirnar á
leiðinni.
Áhersla er lögð á skemmtilega hreyfingu, gleði og samvinnu.
• Hvar: Íþróttamiðstöðinni að Varmá, Mosfellsbæ.
• Dagsetning: Laugardagurinn
15. ágúst 2026.
• Hvenær: Kl. 09:30 -
15:00 (Ræst út í hollum á nokkurra mínútna fresti).
• Ráshópar: Við skráningu velur þú ráshóp með
rástíma sem hentar þér.
• Hlaupaleið: Leiðin er samtals 3,5 km og
inniheldur 21 hindrun.
• Upphaf: Við Íþróttamiðstöðina að Varmá.
• Endir: Við Íþróttamiðstöðina að Varmá.
• Umsjón: Ungmennafélagið Afturelding ásamt
UMFÍ.
Hvað kostar og hvernig fer skráning fram?
Við höfum stillt verðið þannig að allir geta verið með – hvort sem þú kemur
einn eða með hóp!
|
næsti maður inn greiðir: |
fjöldi |
samtals |
|
1 |
3.900 |
|
|
3.000 |
2 |
6.900 |
|
2.000 |
3 |
8.900 |
|
2.000 |
4 |
10.900 |
|
1.500 |
5 |
12.400 |
|
1.500 |
6 |
13.900 |
|
|
|
|
|
|
|
|
Geta öll tekið þátt?
Drulluhlaup Krónunnar og UMFÍ er fyrir alla fjölskylduna og
allt fólk sem hefur gaman af því að taka þátt í fjörugum viðburði.
Froðuvél verður á rás svæðinu fyrir yngstu börnin til að leika sér í. Þess
vegna er upplagt fyrir foreldra og frænkur og frændur að koma með alla
fjölskylduna og hvetja þátttakendur í gegnum skítverkið.
Svona er Drulluhlaupið
Hlaupaleiðin er drulluskemmtileg og krefjandi. Leiðin er 3,5 km langur hringur
í Varmárdalnum með fjölda stórskemmtilegra hindrana sem þarf að
yfirstíga. Fjölskyldu- og/eða vinahópar hlaupa saman og hjálpast að við að
komast í gegnum hindranirnar eða leysa saman þrautirnar.
Hlaupaleiðin er skemmtileg og krefjandi en samt ættu öll 8 ára og 80 ára að
komast í gegnum hana með aðstoð foreldra og/eða forráðarmanna. Yngri börn ættu
að komast í gegnum flestar þrautir með aðstoð foreldra og alltaf er hægt að
sleppa/fara framhjá þraut ef einhver treystir sér ekki í hana.
U.þ.b. 10 manna hópar verða ræstir út með u.þ.b. 2 mínútna millibili frá kl. 09:30
- 12:00.
Þú velur rástíma við skráningu sem hentar þér.
Rás- og endamark er við Íþróttahúsið við Varmá og þar verður dúndrandi
partýstemning frá fyrstu mínútu. Engar áhyggjur þótt þú sért kominn langt inn í
myrkviði Drulluhlaups Krónunnar því partýið heldur áfram alla leið.
Víða á leiðinni verður hægt að hvetja keppendur áfram og njóta samverustundar
með fjölskyldum og vinum sem ösla í gegnum drullupolla og vaða aur og mold til
að komast saman á leiðarenda.
Er hægt að skola af sér eftir hlaupið?
Já! Skolstöð verður á staðnum og frítt í sund fyrir alla þátttakendur í Varmárlaug.
Afhending hlaupagagna
Hlaupagögn verða afhent í verslun Krónunnar í Mosfellsbæ fimmtudaginn 13. Ágúst
milli kl. 17:00 og 19:00. Fyrir þau sem ómögulega komast að sækja gögnin
fyrirfram þá verður stöð við Varmá fyrir hlaup þar sem hægt verður að sækja
gögnin. Við hvetjum alla til að sækja gögnin áður til að minnka örtröðina og
auðvelda ræsingu í hlaupið.