Íslandsmót í fjallabruni


Keppnishaldari

Hjólreiðafélag Reykjavíkur
Kt. 430194-2089
Engjavegi 6
Reykjavík
hfr@hfr.is

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Keppt verður í sömu braut og íslandsmeistaramóti 2024. Sjá brautarskoðunarmyndband https://youtu.be/CVgxjsxxF6Q?si=idez-U-CTyJ6iHqJ

Sjá einnig: https://www.strava.com/segments/37144944

Dagskrá

11:30 - 12:30 - Afhending keppnisgagna á bílastæðinu við enda brautar
12:30 Braut lokar 

13:00 Ræsing

Keppendur undir 18 ára eru alfarið á ábyrgð foreldra/forráðamanna. Gögn verða ekki afhent keppanda yngri en 18 ára nema ábyrgðaraðili sé til staðar.

Keppt er eftir Keppnisreglum HRÍ

Sérstaklega skal skoða kafla 5.3 um Fjallabrun.

Búnaður

Samkvæmt keppnisreglum HRÍ skal nota hjálm sem ver allt andlit (full-face) bæði í keppni og við æfingar. Hjálmurinn verður að vera með skyggni. Opnir hjálmar án kjálkahlífar eru bannaðir. Einnig skal vera með augnhlífar (gogglur eða hlífðargleraugu). Einnig skal vera með hnéhlífar og bakbrynju.

Sérstaklega er mælt með eftirfarandi aukahlífðarbúnaði:

  1. Brjóst-, Olnboga-, og axlahlífum úr stífum efnum.
  2. Vörn fyrir háls og hryggjarliði.
  3. Vörn fyrir sköflunga og læri.
  4. Víðum buxum úr rifvörðu efni með innbyggðum hlífum fyrir hné og kálfa, eða stuttbuxum úr rifvörðu efni ásamt hné og kálfahlífum.
  5. Síðerma treyju.
  6. Hönskum.

Brautin er klár til æfinga og mælum við með að folk kynni sér brautina vel og æfi sig í henni fyrir mót.

Athugið að búið er að loka veginum að brautinni. Bílastæði eru við Skógræktina, Bauhaus, og gönguleiðina fyrir innan nýja hverfið í Úlfarsársdalnum.

Upplýsingar um keppanda

Keppnisgreinar

16.08.2026

Flokkur:
Skráningarfrestur: 14.08.2026 12:00
6.900 ISK (Fullt verð)
4.000 ISK (Verð til 12.08.2026 12:00 | 15 ára og yngri)
5.000 ISK (Verð til 12.08.2026 12:00 | 16 ára og eldri)


Skráningarfrestur: 14.08.2026 12:00
6.900 ISK (Fullt verð)
5.000 ISK (Verð til 12.08.2026 12:00 | 16 ára og eldri)