Skilmálar fyrir viðburði á vegum Hjólreiðafélags Vesturlands.
(Uppfært 9. júní 2020)
Með skráningu í viðburð á vegum Hjólreiðafélags Vesturlands staðfestir þátttakandi að hafa lesið, skilið og samþykkt neðangreinda skilmála í heild. Sé þátttakandi undir 18 ára aldri þegar skráning fer fram þarf foreldri eða forráðamaður að samþykkja þessa skilmála í heild fyrir hönd þátttakanda. Hjálmaskylda er undantekningarlaust á öllum viðburðum sem fram fara á hjóli. Viðburðarstjórn getur gert kröfu á frekari öryggisbúnað fyrir einstaka viðburði.
Skilgreiningar:
Þátttakandi - Sá sem tekur þátt í hvers konar viðburði, hvort sem er keppni, námskeiði, æfingum eða öðru.
Viðburður - Hjólreiðakeppni, samhjól, námskeið, æfingar eða hvers konar viðburður sem skipulagður er af viðburðarstjórn.
Viðburðarstjórn - Sá einstaklingur, hópur eða félag sem heldur viðburð ásamt mótsstjóra, dómurum og öðrum aðilum eftir því sem við á. Viðburðarstjórn hefur ákvörðunarvald á viðburðum.
Viðburðarstaður - Braut, vegur eða annað svæði þar sem viðburður fer fram.
Keppnisstjórn - Sá einstaklingur, hópur eða félag sem heldur hjólreiðakeppni.
Landeigandi - Sá aðili/aðilar sem eiga landsvæðið þar sem viðburður fer fram.
Almennir skilmálar:
Þátttakendur sýna ávallt ýtrustu varúð í samræmi við aðstæður. Þátttakendum ber að virða viðburðareglur og þær reglur sem viðburðastjórn hefur gefið út þegar viðburður er auglýstur. Þátttakendur skulu sýna af sér íþróttamannslega hegðun sem er hjólreiðaíþróttinni til framdráttar og skulu ávallt koma heiðarlega fram við viðburðarstjórn og aðra þátttakendur jafnt á viðburðinum sem og utan viðburðar. Hótanir og niðrandi ummæli um aðra þátttakendur eru hvorki leyfð á viðburðinum né utan viðburðar. Þátttakendur viðburða sem fara fram á opnum vegum skulu fylgja öllum almennum umferðarlögum. Þátttakanda ber að fara eftir tilmælum yfirvalda og viðburðarstjórnar um sóttvarnir.
Ábyrgðarskilmálar:
Þátttakandi/ábyrgðaraðili samþykkir að þátttaka í viðburðum er algjörlega á eigin ábyrgð.
Þátttakandi/ábyrgðaraðili afsalar sér öllum kröfurétti á hendur viðburðarstjórn, landeigendum og öðrum aðilum sem koma að viðburði.
Þátttakendum ber að kynna sér aðstæður vel og taka mið af aðstæðum. Aðstæður til hjólreiða geta breyst fyrirvaralaust og þó að viðburðarstjórn geri sitt besta til að tryggja öryggi á viðburðarstað tekur hún ekki ábyrgð á leyndum eða ófyrirséðum hættum.
Viðburðarstjórn tekur ekki ábyrgð á slysum, andláti eða skemmdum á búnaði sem orðið getur vegna atviks í viðburði eða öðru sem er bein afleiðing af þátttöku í viðburði.
Þátttakanda ber að nota viðeigandi öryggisbúnað, viðburðarstjórn getur sett kröfu um ákveðinn búnað á sínum viðburði og ber þátttakendum að tryggja að sá búnaður uppfylli öryggiskröfur, sé óskemmdur og rétt notaður.
Þátttakandi ber ábyrgð á því að hjól, allur búnaður og tryggingar standist gildandi lög í því landi þar sem viðburðurinn er haldinn.
Þátttakandi/ábyrgðaraðili staðfestir að hann/hún hefur ekki vitneskju um neina líkamlega eða andlega kvilla sem gætu skapað hættu fyrir mig eða aðra þátttakendur í viðburði.
Heimildir viðburðarstjórnar:
Viðburðarstjórn áskilur sér rétt til að fresta eða aflýsa viðburði til að tryggja öryggi þátttakenda komi upp aðstæður sökum veðurs eða annarra illviðráðanlegra orsaka.
Viðburðarstjórn áskilur sér rétt til að breyta skilmálum sé þörf á því.
Viðburðarstjórn sendir uppfærða skilmála á alla þá sem samþykkt hafa eldri skilmála og eru skráðir í viðburð sem framundan er. Séu skilmálir uppfærðir þurfa þátttakendur að samþykkja nýja skilmála til að halda þáttttökurétti.
Viðburðarstjórn áskilur sér rétt til að víkja þátttakanda úr viðburði gerist hann brotlegur við einhverja af ofangreindum skilmálum eða telji hún ástand (ölvun, vímu, þreytu eða annað sem hefur áhrif á getu) eða getustig þátttakanda stofna öryggi hans sjálfs eða annarra í hættu.