Cyclocross bikarmót og íslandsmót 2023Hjólreiðafélag Reykjavíkur heldur Cyclocross mótaröðina í ár.
-
30. september (bikarmót 1)
- 1. október (bikarmót 2 í sömu braut, en hin áttin)
- 7. október (Íslandsmót og bikarmót 3)
Við höfum ákveðið að bjóða upp á tímabundið pakkatilboð, ef keppendur skrá sig tímanlega í öll þrjú mótin í einu fæst afsláttur af heildarverðinu. Þetta tilboð gildir til klukkan 23:59, þriðjudaginn 26. september. Eftir það verður eingöngu hægt að skrá sig í hvert mót fyrir sig.
Venjulegt verð fyrir Junior og yngri er 3.000 krónur hvert mót en ef keppendur skrá sig í öll þrjú er gjaldið fyrir hvert mót fyrir sig 2.500 kr.
Venjulegt verð fyrir fullorðna er 3.500 krónur fyrir hvert mót en ef keppendur skrá sig í öll þrjú er gjaldið 3.000 fyrir hvert mót fyrir sig.
Athugið að keppendur sjá sjálfir um leigu á tímatökuflögu. Hægt er að ganga frá leigu á flögu á
netskraning.is/flogur.