Frjálsíþróttadeild UMF Selfoss
Kt. 690390-2729
frjalsar@umfs.is
Dagsetning: 8. ágúst 2026
Hið árlega Brúarhlaup á Selfossi er fjölskylduvænn hlaupa- og hjólaviðburður sem hentar jafnt byrjendum sem keppnisfólki. Allar hlaupaleiðir eru löggiltar og mældar upp af viðurkenndum aðila og flögutímataka er í öllum hlaupavegalengdum. 5 km og 10 km hlaupin eru viðurkennd og vottuð af Frjálsíþróttasambandi Íslands.
Rásmark 10 km, 5 km og hjólreiða er á Árvegi á Selfossi. Rásmark 3 km og Sprotahlaups er í Miðbæjargarðinum. Allar vegalengdir enda í Sigtúnsgarðinum í miðbæ Selfoss.
Veittir eru verðlaunapeningar fyrir efstu þrjú sæti í aldursflokkum og í heildarkeppni karla og kvenna í 5 km og 10 km. Einnig eru veitt verðlaun í 3 km hlaupi og 5 km hjólreiðum, auk útdráttarverðlauna meðal þátttakenda. Verðlaunaafhending fer fram kl. 13:00 í Miðbæjargarðinum.
Allir þátttakendur fá frítt í sund að hlaupi loknu gegn framvísun keppnisnúmers, í boði Sveitarfélagsins Árborgar.