Bronsleikar 2023Bronsleikar ÍR eru haldnir að hausti ár hvert. Leikarnir eru til heiðurs Völu Flosadóttur sem vann til bronsverðlauna í stangarstökki á Ólympíuleikunum í Syndey árið 2000.
Á Bronsleikum er keppt í Fjölþraut barna sem samanstendur af þrautum sem reyna á styrk, snerpu, úthald og samhæfingu. Þrautirnar eru þróaðar sérstaklega fyrir þann aldur sem þær eru lagðar fyrir svo allir ættu að fá skemmtileg viðfangsefni við hæfi.
Tímasetning
Leikarnir árið 2023 verða haldnir í Laugardalshöll 7. október og hefst keppnin klukkan 9:00.
Keppendum verður raðað í hópa sem byggðir eru á félögum sem þeir koma frá en einnig verða settir saman hópar úr smærri félögum og einstaklingum.
Þann 6. Október verða upplýsingar verða sendar á foreldra og/eða þjálfara liðsins sem skráir keppendurna. Þar verða upplýsingar um mætingu, rástíma og hvenær keppni lýkur hjá hverjum hópi. Hver keppnishópur má hafa 3 liðsstjóra með sér og hvetjum við félögin til að skipuleggja það vel.
Flokkar og keppnisfyrirkomulag
7 ára og yngri (2016+)
Fjölþraut barna – Börnin fara í 8 til 14 manna hópum í gegnum þrautabraut sem samanstendur af 6 þrautum.
Þrautirnar í ár verða: Klapphlaup, París, Kraftkast, Skutlukast, Stigaboðhlaup og Keðjulangstökk.
8 – 9 ára (2014-2015)
Fjölþraut barna – Börnin fara í 8 til 14 manna hópum í gegnum þrautabraut sem samanstendur af 7 þrautum.
Þrautirnar í ár verða: 30 m hlaup, Langstökk, Kúluvarp, Hindrunarhlaup, Grindaboðhlaup, Skutlukast og Sipp.
Í fjölþrautinni er árangur ekki skráður á einstaklingsgrundvelli heldur fær hver hópur bækling sem árangur hópsins er skráður í.
10 – 11 ára (2010-2011)
Fjórþraut – Börnin mynda 8 manna hópa og reyna sig í langstökki, kúluvarpi, 60m hlaupi og 600m hlaupi.
Í langstökki fá allir þrjú stökk og í kúluvarpi fá allir 4 köst og tvö lengstu köstin mæld.
Í fjórþrautinni er tekinn tími og árangur hvers og eins mældur og skráður inn í mótaforritið Þór.
Nánari upplýsingar
irfrjalsar@gmail.com
http://ir.is/frjalsar/bronsleikar-ir/
Athugið að 500 kr aðgangseyrir er á mótið. Opnað verður fyrir sölu aðgöngumiða fljótlega og verður það kynnt hér og með tölvupósti til allra skráðra keppenda.