Bakgarður Náttúruhlaupa Heiðmörk

Íslenska English

Keppnishaldari

Arctic Running ehf.
Kt. 570112-0310
bakgardur@natturuhlaup.is

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Bakgarður Náttúruhlaupa

Bakgarður Náttúruhlaupa (Iceland Backyard Ultra) verður haldinn í sjötta sinn laugardaginn 20. september. Keppnin verður hefðbundið bakgarðshlaup og fer eftir ákveðinni uppsetningu og reglum (http://backyardultra.com/rules/). Hlaupin verður 6,7km hringur á hverjum klukkutíma. Sá sem hleypur flesta hringi er sá eini sem klárar hlaupið og stendur uppi sem sigurvegari. Til að klára hlaupið verður viðkomandi að klára síðasta hringinn einn. Allir hringir verða ræstir á heila tímanum og er mikilvægt að koma sér á ráslínu tímanlega fyrir hvern hring.

Skráning opnar miðvikudaginn 11. júní kl. 12:00.

Hvað eru bakgarðshlaup (Backyard Ultra)?
Bakgarðshlaup eru tegund ofurhlaupa þar sem þátttakendur verða að hlaupa 6706m (4,167 mílur) á innan við klukkutíma. Hver hringur byrjar alltaf á heila tímanum. Eftir hvern hring má nota tímann sem er eftir af klukkutímanum til að hvílast og undirbúa sig fyrir næsta hring. Þetta er endurtekið á klukkutíma fresti þar til aðeins einn hlaupari er eftir í brautinni og klárar síðasta hringinn einn. Heildarvegalengd hlaupara sem klárar 24 hringi (24 klukkutímar) er 100 mílur (160,8km)

Facebook síða: facebook.com/icelandbackyardultra
Staðsetning: Elliðavatnsbær, Heiðmörk
Tímasetning: Keppnin hefst kl. 9:00, laugardaginn 20. september 2025
Hlaupaleið: 6,7km hringur í Heiðmörk, byrjar og endar við Elliðavatnsbæ
Vegalengd: Þú hleypur eins marga hringi og þú getur!
Tímamörk: Engin tímamörk nema að klára hvern 6,7km innan klukkutíma
Úrslit: Allir sem taka þátt í Bakgarðshlaupinu fá skráða fjölda hringja og vegalengdina sem þeir klára
Verðlaun: Þátttöku-/DNF viðurkenning

Góð drykkjarstöð og aðstaða fyrir hlaupara verður við Elliðavatnsbæ. Lögð verður áhersla á skemmtilega og fjöruga umgjörð allan daginn. Starfsfólk Náttúruhlaupa verða til taks allan tímann fyrir þátttakendur í hvíldartímanum. Veitingar verða í boði með reglulegu millibili. 

Skráning fer fram á Netskráning.is og opnar miðvikudaginn 11. júní kl. 12:00. 
Skráningargjöld verða ekki endurgreidd.

Hægt verður að gera nafnabreytingar undir Þín skráning inni á skráningarsíðu keppninnar á www.netskraning.is til og með 1. september.

Ætlar þú að nafnabreyta miða eftir 1. september?
Eftir 1. september þarftu að senda tölvupóst á bakgardur@natturuhlaup.is til að gera nafnabreytingu á miðanum þínum. Sá sem fær miðann þinn er í cc í tölvupóstinum, en hann þarf síðan að skrá sig sjálfur skv. leiðbeiningum mótshaldara og greiðir á sama tíma breytingargjald. Frá 2.-14. er 2.900 kr. breytingagjald. ENGAR NAFNABREYTINGAR VERÐA GERÐAR EFTIR 14. SEPTEMBER.

Verð:
Fullt verð 14.900 kr.

Innifalið í skráningu:
Keppnisnúmer, brautarvarsla og tímataka
Hressing og veitingar á drykkjarstöð allan tímann
Þátttökuviðurkenning

Fylgist með á Facebook síðu hlaupsins: facebook.com/icelandbackyardultra

Skipuleggjendur keppninnar: Náttúruhlaup og Arctic Running

Nánari upplýsingar fást í gegnum netfangið bakgardur@natturuhlaup.is
Upplýsingar um keppanda


Keppnisgreinar

20.09.2025