Bakgarður 730

Íslenska English

Keppnishaldari

Gunnar Lárus í samvinnu við Eyrin Heilsurækt
Kt. 4910230820
bakgardur730@gmail.com

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Bakgarður730

Bakgarður730 verður haldinn í fjórða sinn laugardaginn 5. september 2026, nú í fyrsta sinn sem formlega skráð Bakgarðshlaup. 
Ráslína er við Eyrina heilsurækt þar sem keppendur munu hafa aðstöðu á milli hringja.
Hlaupið er hefðbundið bakgarðshlaup og fer eftir ákveðinni uppsetningu og reglum (http://backyardultra.com/rules/) þar sem hlaupinn verður 6,7km hringur á hverjum klukkutíma. Sá sem hleypur flesta hringi er sá eini sem klárar hlaupið og stendur uppi sem sigurvegari. Til að klára hlaupið verður viðkomandi að klára síðasta hringinn einn. Allir hringir verða ræstir á heila tímanum og er mikilvægt að koma sér á ráslínu tímanlega fyrir hvern 

Hvað eru bakgarðshlaup (Backyard Ultra)?
Bakgarðshlaup eru tegund ofurhlaupa þar sem þátttakendur verða að hlaupa 6706m (4,167 mílur) á innan við klukkutíma. Hver hringur byrjar alltaf á heila tímanum. Eftir hvern hring má nota tímann sem er eftir af klukkutímanum til að hvílast og undirbúa sig fyrir næsta hring. Þetta er endurtekið á klukkutíma fresti þar til aðeins einn hlaupari er eftir í brautinni og klárar síðasta hringinn einn. Heildarvegalengd hlaupara sem klárar 24 hringi (24 klukkutímar) er 100 mílur (160,8km)

Instagram: https://www.instagram.com/bakgardur730
Upplýsingasíða á Bigs backyard:
https://bigsbackyardultra.com/races/bakgardur-730/ 
Staðsetning: Eyrin heilsurækt, Reyðarfirði
Tímasetning: Keppnin hefst kl. 10:00, laugardaginn 5. september 2026
Hlaupaleið: Gunnarsbaugur, 6,7km hringur um Reyðarfjörð, ráslína við Eyrina heilsurækt.
Vegalengd: Þú hleypur eins marga hringi og þú getur!
Tímamörk: Engin tímamörk nema að klára hvern 6,7km innan klukkutíma
Úrslit: Allir sem taka þátt í Bakgarðshlaupinu fá skráða fjölda hringja og vegalengdina sem þeir klára
Verðlaun: Þátttöku-/DNF viðurkenning

Góð drykkjarstöð og aðstaða fyrir hlaupara verður við Eyrina heilsurækt. Lögð verður áhersla á skemmtilega og fjöruga umgjörð allan daginn. Skipuleggjendur og sjálfboðaliðar verða til taks allan tímann fyrir þátttakendur í hvíldartímanum. Veitingar verða í boði með reglulegu millibili. 

Skráningargjöld verða ekki endurgreidd.

Verð í keppnina: 5000 kr og ágóði rennur til góðgerðarmála eins og fyrri ár.

Innifalið í skráningu:
Keppnisnúmer, brautarvarsla og tímataka
Hressing og veitingar á drykkjarstöð
Þátttökuviðurkenning

Frjáls framlög einnig velkomin utan skráningargjalds, upplýsingar um það fást á bakgardur730@gmail.com 

Í ár styrkjum við https://www.okkarheimur.is/ 
sem vinnur frábært starf fyrir börn sem eiga foreldra með geðrænan vanda. Verður styrkurinn ætlaður til fræðslu og stuðnings á þeirra vegum hér í Fjarðabyggð.

Skipuleggjendur keppninnar: Gunnar Lárus Karlsson, Anna Sigrún Jóhönnudóttir og Eyrin heilsurækt

Nánari upplýsingar fást í gegnum netfangið bakgardur730@gmail.com

Skemmtigarður

Skemmtigarðurinn er ætlaður fyrir þau sem vilja taka þátt með okkur í bakgarður730 en af einhverjum ástæðum vilja/geta ekki farið hefðbundinn 6.7km hring. 
Brautin í Skemmtigarðinum er 3.8 km löng.
Skemmtigarðinum er startað frá Eyrinni heilsurækt kl 10:05 og svo 5 mínútur yfir heila tímann næstu klukkustundir eða þar til allir keppendur hafa lokið keppni. 
ATH! Ekki er hægt að fara á milli bakgarðs og skemmtigarðs, keppendur mega eingöngu vera skráðir í annað hlaupið. 

Góð drykkjarstöð og aðstaða fyrir hlaupara verður við Eyrina heilsurækt. Lögð verður áhersla á skemmtilega og fjöruga umgjörð allan daginn. Skipuleggjendur og sjálfboðaliðar verða til taks allan tímann fyrir þátttakendur í hvíldartímanum. Veitingar verða í boði með reglulegu millibili. 

Skráning fer fram á Netskráning.is og opnar sunnudaginn 26. júlí kl. 10:00. 
Skráningargjöld verða ekki endurgreidd.

Verð í keppnina: 5000 kr og ágóði rennur til góðgerðarmála eins og fyrri ár.

Innifalið í skráningu:
Keppnisnúmer, brautarvarsla og tímataka
Hressing og veitingar á drykkjarstöð
Þátttökuviðurkenning

Frjáls framlög einnig velkomin utan skráningargjalds, upplýsingar um það fást á bakgardur730@gmail.com 

Í ár styrkjum við https://www.okkarheimur.is/ 
sem vinnur frábært starf fyrir börn sem eiga foreldra með geðrænan vanda. Verður styrkurinn ætlaður til fræðslu og stuðnings á þeirra vegum hér í Fjarðabyggð.

Skipuleggjendur keppninnar: Gunnar Lárus Karlsson, Anna Sigrún Jóhönnudóttir og Eyrin heilsurækt

Nánari upplýsingar fást í gegnum netfangið bakgardur730@gmail.com
Upplýsingar um keppanda


Keppnisgreinar

05.09.2026

Skráningarfrestur: 04.09.2026 23:59
Verð: 5.000 ISK

Bakgarður 730


Skráningarfrestur: 04.09.2026 23:59
Verð: 5.000 ISK