Megin ehf.
Kt. 550321-3000
Gunnlaugur Ólafsson
info@austurultra.is
Austur Ultra verður haldið í þriðja sinn þann 12. ágúst næstkomandi. Í Austur Ultra er hlaupið um land Stafafells í Lóni á Austurlandi. Svæðið er eitt stórkostlegasta og fjölbreytilegasta þversnið af íslenskri náttúru sem hægt er að komast í. Frá hálendismelum um grösugan dal óbyggðanna. Eftir litskrúðugum skriðum, hrikalegu jökulsárgljúfri og gróskumiklum birkiskógi.
Þrjár vegalengdir eru í boði, 53 km, 18 km og 9 km. Rásmark allra vegalengda verður í Hvannagili. Þangað komast allir bílar og þar er einnig hægt að leggja bílum. Hvannagil er í um 10 mínútna keyrslu af þjóðvegi 1 og koma keppendur sér sjálfir að rásmarkinu. Boðið verður upp á rútuferðir inn að Hvannagili á 20 mínútna fresti frá kl. 15:00 á mótsdegi fyrir þá sem skilja bílana sína þar eftir. Drykkjarstöðvar verða við Eskifellsbrú, Kollumúla og í Hvannagili . Endamark verður á tjaldstæðinu á Stafafelli og mun DJ halda uppi stuðinu á meðan það er grillað ofan í keppendur.