Frjálsíþróttadeild Ármanns
Kt. 491283-0339
Engjavegi 7
104 Reykjavík
aukakronuhlaup@armannfrjalsar.com
Afhending keppnisnúmera fer fram í höfuðstöðvum Landsbankans, Reykjastræti 6, 101 Reykjavík, mánudag og þriðjudag 6. og 7. júlí milli kl. 16 og 18. Einnig er hægt að nálgast hlaupanúmerin þar á hlaupdegi frá kl. 16 þangað til hálftími er í ræsingu. Gengið er inn um aðalinngang.
Hlaupaleiðin - 10 km
Leiðin (sjá mynd 1) er löglega mæld og hlaupið vottað af FRÍ. Ræst er við höfuðstöðvar Landsbankans við Reykjastræti 6 kl. 20.00. Við ræsingu er hlaupið til austurs út á Hörputorg, þaðan er beygt út á hjóla og göngustíg meðfram Kalkofnsvegi, beygt inn meðfram Geirsgötu til vesturs og hlaupið um Suðurbugt inn á Miðbakka og þaðan um Austurbakka að Hörputorgi. Þaðan er haldið áfram í austur áfram inn á göngustíg meðfram Sæbrautinni, þar sem stígar eru aðskildir er hlaupið á hjólastíg í austurátt. Eftir stígum er haldið sem leið liggur að vitanum við Viðeyjarferjuna þar sem snúið er við og hlaupið til baka eftir göngustíg. Þegar yfir Hörputorg er komið er haldið rakleiðis í átt að Reykjastræti þar sem endamarkið er við hlið höfuðstöðva Landsbankans.
Mynd 1. Yfirlitsmynd af 10 km hlaupi í Aukakrónuhlaupi Ármanns 2026.
Á mynd 2 má sjá upphaf hlaupsins, græni punkturinn á myndinni er rásmark og endamark hlaupsins.
Mynd 2. Rásmark, upphafskafli og endamark 10 km hlaups Aukakrónuhlaups Ármanns 2026.

Aðgengi verður fyrir hlaupara og aðra gesti í anddyri höfuðstöðva Landsbankans Reykjastræti 6 hlaupadaginn. Hlauparar eru hvattir til að nýta sér almenningssamgöngur eða aðra virka ferðamáta. Fyrir þá sem koma akandi er úrval bílakjallara í næsta nágrenni, einn slíkur er undir höfuðstöðvum Landsbankans og hægt er að ganga úr bílakjallaranum beint upp í anddyri bankans. Hlauparar geta fengið að geyma fatnað innandyra meðan á hlaupinu stendur auk þess að komast á salerni.
Verðlaun
Vegleg útdráttarverðlaun frá samstarfsaðilum Aukakróna Landsbankans.
5 km hlaup: Verðlaunapeningar verða veittir fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna. Auk þess fá sigurvegarar í karla og kvennaflokki 30 þúsund Aukakrónur hvort.
10 km hlaup: Verðlaunapeningar verða veittir fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna. Auk þess fá efstu þrír af hvoru kyni Aukakrónur. 80 þúsund Aukakrónur fyrir 1. sæti, 40 þúsund Aukakrónur fyrir 2. sæti og 20 þúsund Aukakrónur fyrir 3. sæti.
Keppt er til verðlauna í 10 km hlaupinu í eftirfarandi aldursflokkum beggja kynja þar sem sigurvegarinn fær verðlaunapening:
12 ára
13 ára
14 ára
15 ára
16-17 ára
18-19 ára
20-22 ára
23-39 ára
40-44 ára
45-49 ára
50-54 ára
55-59 ára
60-64 ára
65-69 ára
70-74 ára
75-79 ára
80-84 ára
85-89 ára
90 ára og eldri