Aukakrónuhlaup Ármanns 2026

Íslenska English

Keppnishaldari

Frjálsíþróttadeild Ármanns
Kt. 491283-0339
Engjavegi 7
104 Reykjavík
aukakronuhlaup@armannfrjalsar.com

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Aukakrónuhlaup Ármanns

Aukakrónuhlaup Ármanns verður ræst fyrir utan höfuðstöðvar Landsbankans, Reykjastræti 6 miðvikudaginn 8. júlí. 2026.

  • Hlaupið hefur í gegnum árin verið þekkt fyrir flata og hraða braut
  • Hlaupavegalengdir í boði eru 5 km sem ræstir eru kl. 19.00 og 10 km hlaup ræst kl. 20.00.
  • Peningaverðlaun í formi inneignar hjá Aukakrónur verða veitt fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna í 10km, auk verðlaunahafa í 5 km.
  • Vegleg útdráttarverðlaun í boði. 
  • Hlaupið er jafnframt Íslandsmót í 10 km. hlaupi
Skráningargjöld


Vegalengd

Forskráningarverð - til 8. maí

Almennt skráningarverð 9. maí til 1. júlí

Fullt verð 2. - 8. júlí

5 km

3.500 kr.

4.000 kr.

5.000 kr.

10 km

4.000 kr. 

4.500 kr.

5.500 kr.

Afhending keppnisnúmera

Afhending keppnisnúmera fer fram í höfuðstöðvum Landsbankans, Reykjastræti 6, 101 Reykjavík, mánudag og þriðjudag 6. og 7. júlí milli kl. 16 og 18. Einnig er hægt að nálgast hlaupanúmerin þar á hlaupdegi frá kl. 16 þangað til hálftími er í ræsingu. Gengið er inn um aðalinngang.

Nafnabreyting

Hægt er að gera nafnabreytingu á skráningu til og með þriðjudagsins 7. júlí, ekki verður hægt að gera nafnabreytingu á hlaupdegi.


Hlaupaleiðin - 10 km

Leiðin (sjá mynd 1) er löglega mæld og hlaupið vottað af FRÍ. Ræst er við höfuðstöðvar Landsbankans við Reykjastræti 6 kl. 20.00. Við ræsingu er hlaupið til austurs út á Hörputorg, þaðan er beygt út á hjóla og göngustíg meðfram Kalkofnsvegi, beygt inn meðfram Geirsgötu til vesturs og hlaupið um Suðurbugt inn á Miðbakka og þaðan um Austurbakka að Hörputorgi. Þaðan er haldið áfram í austur áfram inn á göngustíg meðfram Sæbrautinni, þar sem stígar eru aðskildir er hlaupið á hjólastíg í austurátt. Eftir stígum er haldið sem leið liggur að vitanum við Viðeyjarferjuna þar sem snúið er við og hlaupið til baka eftir göngustíg. Þegar yfir Hörputorg er komið er haldið rakleiðis í átt að Reykjastræti þar sem endamarkið er við hlið höfuðstöðva Landsbankans.


Mynd 1. Yfirlitsmynd af 10 km hlaupi í Aukakrónuhlaupi Ármanns 2026.


Á mynd 2 má sjá upphaf hlaupsins, græni punkturinn á myndinni er rásmark og endamark hlaupsins.


Mynd 2. Rásmark, upphafskafli og endamark 10 km hlaups Aukakrónuhlaups Ármanns 2026.


Hlaupaleiðin - 5 km.

Leiðin (sjá mynd 3) er löglega mæld og hlaupið vottað af FRÍ. Ræst er við höfuðstöðvar Landsbankans við Reykjastræti 6 kl. 19.00. Við ræsingu er hlaupið til austurs yfir Hörputorg og inn á göngustíg meðfram Sæbrautinni og þar sem göngustígar eru tvískiptir er hlaupið á hjólastíg í austurátt. Þegar komið er í námunda við dælustöð við Kirkjusand er snúið við inn á göngustíg og hlaupið á honum í vesturátt. Þegar yfir Hörputorg er komið er haldið rakleiðis í átt að Reykjastræti þar sem endamarkið er við hlið höfuðstöðva Landsbankans.


Mynd 3. Yfirlitsmynd af 5 km hlaupi í Aukakrónuhlaupi Ármanns 2026.

Aðstaða

Aðgengi verður fyrir hlaupara og aðra gesti í anddyri höfuðstöðva Landsbankans Reykjastræti 6 hlaupadaginn. Hlauparar eru hvattir til að nýta sér almenningssamgöngur eða aðra virka ferðamáta. Fyrir þá sem koma akandi er úrval bílakjallara í næsta nágrenni, einn slíkur er undir höfuðstöðvum Landsbankans og hægt er að ganga úr bílakjallaranum beint upp í anddyri bankans. Hlauparar geta fengið að geyma fatnað innandyra meðan á hlaupinu stendur auk þess að komast á salerni. 


Verðlaun

Vegleg útdráttarverðlaun frá samstarfsaðilum Aukakróna Landsbankans. Fjöldi vinninga verður í boði frá Aukakrónum og samstarfsaðilum þeirra. Auk þess verða BSport, Hverslun, Domino’s og 66°Norður á staðnum á hlaupadeginum.

5 km hlaup: Verðlaunapeningar verða veittir fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna. Auk þess fá sigurvegarar í karla og kvennaflokki 30 þúsund Aukakrónur hvort og Sky lagoon gjafabréf, silfurverðlaunahafar fá 10 þúsund Aukakrónur og hlaupavesti frá Bsport, bronsverðlaunahafar fá 5 þúsund Aukakrónur. 

10 km hlaup: Verðlaunapeningar verða veittir fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna. Auk þess fá sigurvegararnir 100 þúsund Aukakrónur, hlaupaskó og hlaupasokka frá Hverslun, 66 Norður Grettir Zipneck og 30% afsláttarmiða. Silfurverðlaunahafar fá 45 þúsund Aukakrónur, hlaupasokka frá Hverslun og gjafabréf í Laugarás Lagoon. Bronsverðlaunahafar fá 20 þúsund Aukakrónur og hlaupasokka frá Hverslun.


ALDURSFLOKKAR

Í samræmi við reglugerð FRÍ um götuhlaup. Tekið er fram að samkvæmt reglugerðinni geta einstaklingar yngri en 12 ára ekki fengið árangur skráðan í afrekaskrá, þeim er þó heimilt að skrá sig í hlaupið. 


Keppt er til verðlauna í 10 km hlaupinu í eftirfarandi aldursflokkum beggja kynja þar sem sigurvegarinn fær verðlaunapening:

12 ára 

13 ára

14 ára 

15 ára

16-17 ára

18-19 ára 

20-22 ára

23-39 ára 

40-44 ára 

45-49 ára 

50-54 ára 

55-59 ára

60-64 ára

65-69 ára

70-74 ára

75-79 ára

80-84 ára

85-89 ára 

90 ára og eldri



Upplýsingar um keppanda


Keppnisgreinar

08.07.2026

Skráningarfrestur: 08.07.2026 21:30
5.000 ISK (Fullt verð)


Skráningarfrestur: 08.07.2026 19:30
5.500 ISK (Fullt verð)