Akureyrarhlaup hefur verið árviss viðburður í Íþróttalífi Akureyringa frá 1992.
Hlaupið er styrkt af Akureyrarbæ, Heilsueflandi samfélagi og atNorth.
Hlaup fyrir alla, unga sem aldna, byrjendur og lengra komna!

Hlaupaleiðin
Boðið er upp á þrjár vegalengdir 5 km, 10 km og hálfmaraþon. Keppni í hálfmaraþoni er jafnframt Íslandsmeistaramót í greininni. Þar er keppt um Íslandsmeistaratitla í hálfmaraþoni karla og kvenna og einnig um Íslandsmeistara í aldursflokkum.
Rás- og endamark er við menningarhúsið Hof og er hlaupið um eyrina og meðfram ströndinni í átt að flugvellinum svo hlaupaleiðin er marflöt og vænleg til góðra afreka.
Hér má sjá nánari lýsingar og kort af hlaupaleiðunum.
Skráning
Skráning fer fram á netskraning.is og einnig verður hægt að skrá sig í World Class á keppnisdag milli kl. 17.00 og 18.30 en þá eru öll keppnisgjöld 1000 kr dýrari.
5 km hlaup kr. 3.000 í forskráningu, kr. 4.000 á keppnisdag
10 km hlaup kr. 4.000, kr. 5.000 á keppnisdag
Hálfmaraþon kr. 6.000, kr. 7.000 á keppnisdag.
18 ára og yngri greiða aðeins 2.000 kr. í allar vegalengdir í forskráningu en 3.000 kr. á keppnisdag.
Dagskrá á hlaupadag
16.00-19.00 Afhending keppnisgagna í World Class við Strandgötu.
19.00 Fyrri ræsing í hálfmaraþoni, hlauparar sem reikna með að vera lengur en 1:50:00 að hlaupa
19.30 Seinni ræsing í hálfmaraþoni, hlauparar sem reikna með að vera fljótari en 1:50:00 að hlaupa
20.05 Ræsing í 5 og 10 km hlaupi
20.20-22.00 Hlauparar koma í mark. Veitingar í boði á marksvæði. Hægt að fara í sturtu í Word Class
22.00 Tímatöku lýkur
21.30-22.00 Verðlaunaafhending í World Class
Tímataka og úrslit
Tímataka.is mun annast tímatöku í hlaupinu. Keppendur fá afhent hlaupanúmer sem þeir þurfa að hafa sýnilegt að framan, fyrir ofan mittishæð allt hlaupið. Í númerinu er tímatökuflaga sem skannast þegar hlaupið er yfir tímatökumottur í byrjun og lok hlaupsins. Mikilvægt er að bera hendurnar ekki fyrir flöguna þegar hlaupið er yfir mottuna því það getur komið í veg fyrir að flagan skannist. Bíðið því með að stoppa klukkuna ykkar þar til þið hafið hlaupið yfir mottuna.
Úrslit verða birt á vefnum timataka.is strax að loknu hlaupi og síðar á hlaup.is og í afrekaskrá FRÍ.
Verðlaun
Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í öllum vegalengdum og verðlaunapeningar fyrir aldursflokka. Einnig verður dreginn út fjöldi útdráttarverðlauna.
Keppt er í eftirfarandi aldursflokkum:
5km: 15 ára og yngri, 16-39 ára, 40-49 ára, 50 ára og eldri
10km: 15 ára og yngri, 16-39 ára, 40-49 ára, 50 ára og eldri
Hálfmaraþon: 15 ára, 16-17 ára, 18–19 ára, 20–22 ára, 23–39 ára, 40–44 ára, 45–49 ára, 50–54 ára, 55–59 ára, 60–64 ára, 65–69 ára, 70–74 ára, 75–79 ára, 80–84 ára, 85–89 ára.
Auk þess gefur Tplús peningaverðlaun kr. 75.000 fyrir ný brautarmet í öllum vegalengdum.
Gildandi brautarmet:
5 km karlar Baldvin Þór Magnússon 14:40
5 km konur Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir 17:54
10 km karlar Kári Steinn Karlsson 30:18
10 km konur Guðlaug Edda Hannesdóttir 34:57
Hálfmaraþon karlar Arnar Pétursson 1:08:22
Hálfmaraþon konur Andrea Kolbeinsdóttir 1:15:59