Akureyrarhlaup hefur verið árviss viðburður í Íþróttalífi Akureyringa frá 1992.
Hlaupið er styrkt af Akureyrarbæ, Heilsueflandi samfélagi, Mizuno og atNorth.
Hlaup fyrir alla, unga sem aldna, byrjendur og lengra komna!
Hlaupaleiðin
Boðið er upp á þrjár vegalengdir 5 km, 10 km og hálfmaraþon. Keppni í hálfmaraþoni er jafnframt Íslandsmeistaramót í greininni. Þar er keppt um Íslandsmeistaratitla í hálfmaraþoni karla og kvenna og einnig um Íslandsmeistara í aldursflokkum.
Rás- og endamark er við menningarhúsið Hof og er hlaupið um eyrina og meðfram ströndinni í átt að flugvellinum svo hlaupaleiðin er marflöt og vænleg til góðra afreka.
Hér má sjá nánari lýsingar og kort af hlaupaleiðunum.
Skráning
Skráning fer fram á netskraning.is og einnig verður hægt að skrá sig í World Class á keppnisdag milli kl. 17.00 og 18.30 en þá eru öll keppnisgjöld 1000 kr dýrari.
5 km hlaup kr. 2.500 í forskráningu, kr. 3.500 á keppnisdag
10 km hlaup kr. 3.500, kr. 4.500 á keppnisdag
Hálfmaraþon kr. 5.500, kr. 6.500 á keppnisdag.
18 ára og yngri greiða aðeins 1500 kr. í allar vegalengdir í forskráningu en kr. 2.500 á keppnisdag.
Tímataka og úrslit
Tímataka.is mun annast tímatöku í hlaupinu. Keppendur fá afhent hlaupanúmer sem þeir þurfa að hafa sýnilegt að framan, fyrir ofan mittishæð allt hlaupið. Í númerinu er tímatökuflaga sem skannast þegar hlaupið er yfir tímatökumottur í byrjun og lok hlaupsins. Mikilvægt er að bera hendurnar ekki fyrir flöguna þegar hlaupið er yfir mottuna því það getur komið í veg fyrir að flagan skannist. Bíðið því með að stoppa klukkuna ykkar þar til þið hafið hlaupið yfir mottuna.
Úrslit verða birt á vefnum timataka.is strax að loknu hlaupi og síðar á hlaup.is og í afrekaskrá FRÍ.
Verðlaun
Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í öllum vegalengdum og verðlaunapeningar fyrir aldursflokka. Einnig verður dreginn út fjöldi útdráttarverðlauna.
Keppt er í eftirfarandi aldursflokkum:
5km: 15 ára og yngri, 16-39 ára, 40-49 ára, 50 ára og eldri
10km: 15 ára og yngri, 16-39 ára, 40-49 ára, 50 ára og eldri
Hálfmaraþon: 18-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára, 60-69 ára, 70-79 ára, 80-89 ára, 90 ára og eldri
Auk þess verða veitt peningaverðlaun fyrir ný brautarmet í öllum vegalengdum.