5VH Trail Run 2026

Íslenska English

Keppnishaldari

Náttúruhlaup / Arctic Running
Kt. 570112-0310
5vh@natturuhlaup.is

Skráðir þátttakendur

Skilmálar

Þín skráning

Söluvarningur

5VH Trail Run

5VH Trail Run (Fimmvörðuhálshlaupið) verður haldið laugardaginn 9. ágúst, 2025. Hlaupið verður um Fimmvörðuháls, frá Skógum að Volcano Huts í Húsadal, 28 km.

Skráning hefst föstudaginn 7. nóvember kl. 12:00

Vefsíða: www.5vhhlaup.is
Facebook síða: facebook.com/5vhtrailrun

Staðsetning: Skógar
Tímasetning: Keppnin hefst kl. 9:00, laugardaginn 8. ágúst 2026
Hlaupaleið: Byrjar við Skóga og endar í Volcano Huts Húsadal
Vegalengd: 28 km
Tímamörk: 7 klst. (kl. 16:00)
Verðlaun: Verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í karla- og kvennaflokki og fyrsta sæti í aldurflokki.

Skráningargjöld verða ekki endurgreidd en hægt verður að gera nafnabreytingar til 31. júlí 2026. Skráningu lýkur 31. júlí eða þegar hlaupið er orðið fullt.

Verð:

19.900 kr. til 31. desember

22.900 kr. frá 1. janúar
23.900 kr. eftir 30. júní 

Innifalið í skráningu:
  • Keppnisnúmer, brautarvarsla og tímataka
  • Drykkjarstöðvar við Baldvinsskála (13 km), Strákagil (23 km) og Volcano Huts. Vatn, íþróttadrykkur, bananar, súkkulaði og Nääk vörur
  • Sturta og salernisaðstaða að hlaupi loknu í Volcano Huts
  • Máltíð í Volcano Huts að hlaupinu loknu
  • Flutningur á farangri frá Skógum í Volcano Huts
  • Sjúkragæsla í Volcano Huts


Ekki innifalið í skráningu:

Rútuferðir og keppnisbolur. Hægt verður að bóka rútu um leið og þú skráir þig í hlaupið (ATH. aðeins rúta hlaupsins sem fer frá Reykjavík til Skóga og frá Þórsmörk (Volcano Huts) til Reykjavíkur samdægurs eftir hlaup). Þegar nær dregur verður hægt að bóka í rútuferð á vegum Volcano Huts sem fer frá Þórsmörk (Volcano Huts) og á Skóga. Keppnisbolinn má kaupa við skráningu. Hann er valkvæður en fæst á góðu verði. Eftir 30. júní er ekki hægt að panta keppnisbol.


Fylgist með á Facebook síðu hlaupsins: Facebook.com/5vhtrailrun

Skipuleggjendur keppninnar: Náttúruhlaup og Arctic Running
Nánari upplýsingar fást í netfanginu 5vh@natturuhlaup.is
Upplýsingar um keppanda


Aukaupplýsingar í neyðartilfelli
Nauðsynlegar upplýsingar fyrir mótshaldara í neyðartilfelli.

Keppnisgreinar

08.08.2026