Suðurnesjabær
Kt. 550518-1200
Hafdís Guðrún
Símanr.: 822 1606
hafdis@sudurnesjabaer.is
Vitahlaupið verður haldið þriðjudaginn 26.ágúst kl.18:00 í Suðurnesjabæ í tengslum við bæjarhátíðina „Vitadagar-hátíð milli vita“.
Í Suðurnesjabæ eru fimm vitar og verður hægt að hlaupa á milli þriggja þeirra.
Það verða tvær hlaupaleiðir í boði. Annarsvegar frá Sandgerðisvita að Garðskagavita: 6,7km sem hefst kl:18:30 og hinsvegar frá Stafnesvita að Garðskagavita: 15,4km sem hefst kl 18:00.
Einnig verður barnahlaup fyrir 12 ára og yngri frá Víðisheimilinu að Garðskagavita: 1,8km. Öll börn sem koma í mark fá glaðning.
Hér er hægt að sjá leiðirnar:
Vitahlaup Stafnesviti - Garðskagaviti | 15.4 km Running Route on Strava
Vitahlaup Sandgerðisviti - Garðskagaviti | 6.7 km Running Route on Strava
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í kvenna, karla og kváraflokkum en einnig verður fjöldi útdráttarverðlauna.
Við munum bjóða upp á skutl áður en hlaup hefst, frá Garðskagavita að Sandgerðisvita annars vegar og frá Garðskagavita að Stafnesvita hins vegar. Þau sem vilja nýta sér það þurfa að skrá sig á vitadagar@sudurnesjabaer.is fyrir 22.ágúst.
Það verður boðið upp á hressingu við drykkjarstöð og endamark. Ath það er ekki salernisaðstaða við Stafnesvita. Verðlaunaafhending verður að loknu hlaupi á Byggðasafninu á Garðskaga.
Frítt verður fyrir hlaupara í sundlaugarnar í Garði og Sandgerði gegn framvísun númersins, en það verður opið þar til kl.21.
Númeraafhending verður auglýst þegar nær dregur.