Vestmannaeyjahlaupið 2025
Vestmannaeyjahlaupið verður haldið laugardaginn 6. september.
Boðið verður upp á 5 km og 10 km.
Rásmark verður við Íþróttamiðstöðina og hefjast bæði hlaupin kl. 12:30
Keppnisgögn eru afhent milli kl. 17-19 föstudagskvöldið 5. september í Íþróttamiðstöð Ve.
Þeir sem koma samdægurs geta sótt gögn á laugardeginum kl.11:00 - 12:30
Eitt þátttökugjald 4.000 kr er í hlaupið, óháð vegalengd. Hlauparar fæddir 2008 og síðar (15 ára og yngri) fá frítt en verða að skrá sig í hlaupið.
Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjá í karla og þrjár í kvennaflokki í hvorri vegalengd.
Verðlaun í 10 km
- 1. sæti 100.000 kr
- 2. sæti 50.000 kr
- 3. sæti 25.000 kr
Verðlaun í 5 km
- 1. sæti 50.000 kr
- 2. sæti 25.000 kr
- 3. sæti 15.000 kr
Einni verða veitt útdráttarverðlaun.
Íþróttahúsið verður opið fyrir og eftir hlaup og hægt er að fara í sund þar og er það innifalið í gjaldinu.
Fyrir þá sem koma ofan af landi þá er um að gera að bóka ferðina yfir tímalega:
herjolfur.is
Frí rútuferð í boði fyrir þá sem koma með 10:45 ferðinni, frá bryggju upp í íþróttahús.
Allar upplýsingar um mótið eru inn á vefsíðu hlaupsins
vestmannaeyjahlaup.is
Þú getur líka fylgst með á
facebook
Upplýsingar veitir Sigmar Þröstur Óskarsson í síma 895-3339 eða Magnús 897-1110.