Frjálsíþróttadeild Ármanns býður til Meistaramóts Íslands í eldri aldursflokkum utanhúss.
Mótið fer fram 16.-17. ágúst á Frjálsíþróttavelli ÍR.
Skráningargjald er kr. 2.200 á grein og kr. 4.400 á hverja boðhlaupssveit.
Skráning er opin til kl. 10:00 föstudaginn 15. ágúst, eftir það verður ekki hægt að skrá keppendur í greinar.
Keppnisgreinar eru samkvæmt reglugerð FRÍ.
Keppt er í aldursflokkum 30 ára og eldri, hver aldursflokkur nær yfir 5 ára tímabil.
Nánari upplýsingar er að finna hér.
Ath. skráningar í gegnum Netskráningu fara ekki beint inn í Þór heldur verða lesnar inn þegar skráningarfrestur er liðinn. Hægt er að skoða skráða keppendur með því að smella á hnappinn Skráðir þáttakendur hér hægramegin á síðunni.