Hleðsluhlaupið verður haldið fimmtudaginn 28. ágúst við Víkina í Fossvogi í þrettánda sinn. Boðið er upp á tvær vegalengdir, 5 km og 10 km og hefst hlaupið kl 19:00.
Vegalengdir eru löglega mældar og viðurkenndar af Frjálsíþróttasambandi Íslands (FRI). Drykkjarstöð er á miðri leið fyrir 10 km hlaupara og eftir hlaup fyrir alla þátttakendur. Aldurstakmark er 12 ára, allir hlauparar sem náð hafa þeim aldri
eru velkomnir, jafnt byrjendur sem lengra komnir.
Í lok hlaups er boðið upp á veglegt kökuhlaðborð í Víkinni ásamt útdráttar verðlaunum fyrir þátttakendur sem skrá sig fyrir miðnætti 27. ágúst.
Hleðsluhlaupið hefur verið mjög vinsælt undanfarin ár þar sem um 600 hlauparar hafa tekið þátt en hlaupið var valið götuhlaup ársins í einkunnagjöf hlaupara árið 2024 og 2022 og í öðru sæti árið 2023.
Tími og staðsetning
Hlaupið fer fram í Fossvogi fimmtudaginn 28. ágúst kl. 19:00. Hlaupið er frá Víkinni, félagsheimili Víkings, Traðarlandi 1. Vinsamlegast mætið tímanlega.
Þátttökugjald og skráning
Verð í forskráningu fyrir miðnætti til 30. júní 2024:
- 2.500 kr,- fyrir 19 ára og eldri (f. 2006 og fyrr)
- 1.000 kr,- fyrir 12-18 ára (f.2007 - 2013).
Verð frá 1. júlí til miðnættis 27. ágúst:
- 3.000 kr,- fyrir 19 ára og eldri (f. 2006 og fyrr)
- 1.500 kr,- fyrir 12-18 ára (f.2007 - 2013).
Skráning á hlaupadegi
- 4.000 kr,- fyrir 19 ára og eldri (f. 2006 og fyrr)
- 2.000 kr,- fyrir 12-18 ára (f.2007 - 2013).
Afhending hlaupagagna
Hlaupagögn verða afhent í íþróttasalnum í Víkinni á hlaupadegi, fimmtudaginn 28. ágúst frá kl. 16.00 - 18.30.
Athugið að ekki er hægt að skrá sig á staðnum nema á eigin vegum á netskraning.is og að því loknu sótt hlaupagögnin.
Verðlaun
Vegleg peningaverðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sætin í karla - og kvennaflokki í báðum vegalengdum þar sem 1. sæti hlýtur 50.000 kr, 2. sæti 40.000 kr og 3. sæti 30.000 kr, heildar verðlaunafé er því 480.000 kr.
Einnig verða veitt verðlaun fyrir fyrsta sæti í hverjum aldursflokki í báðum vegalengdum.
Verðlaunaafhending hefst kl 19:30 í íþróttasalnum í Víkinni. Þátttakendur sem skrá sig fyrir kl 00:00 þann 27. ágúst eiga möguleika vera dregin út og fá einhvern af þeim fjölda glæsilegra útdráttarverðlauna. Hlaupanúmer þeirra sem vinna til útdráttarverðlauna verða birt í íþróttasalnum í Víkinni.
Aldursflokkar
Úrslit verða birt sem heildarúrslit og eftir aldursflokkum karla og kvenna:
- 12-18 ára
- 19-29 ára
- 30-39 ára
- 40-49 ára
- 50-59 ára
- 60-69 ára
- 70 ára og eldri
Salerni og fatageymsla
Salerni og fatageymsla (vaktað) er í tengibyggingu við íþróttasalinn. Engin ábyrgð er tekin á fatnaði eða öðrum munum og ekki heldur á hlaupaleiðinni.
Almennar upplýsingar
Að hlaupi loknu er þátttakendum boðið upp á hressingu og veitingar í íþróttasalnum í Víkinni. Þátttakendur eru hvattir til að sameinast í bíla og nota almenningssamgöngur. Þeir sem búa næst svæðinu eru beðnir um að skilja bílinn eftir heima. Bílastæði eru í Stjörnugróf, stæði austan við Víkina og við Fossvogsskóla. Athugið að bílastæði vestan við Víkina verða lokuð vegna hlaupsins frá kl. 16:00. Traðarlandi verður lokað fyrir umferð frá kl. 18.45 og þar til síðasti hlaupari er komin í mark (um kl. 20.30)
Úrslit verða birt á timataka.net
Myndir frá hlaupinu verða birtar á Facebook síðu hlaupsins endilega fylgist með og "lækið"
Facebook
Skipuleggjendur
Almenningsíþróttadeild Víkings, netfang: almennings@vikingur.is. Facebook síða hlaupahópsins:
Facebook Hlaupastjóri: Jóhann Guðjónsson, sími 617-4804